Rashford bestur og jafnaði met Salah Sindri Sverrisson skrifar 10. mars 2023 15:01 Marcus Rashford hefur ósjaldan bent á höfuð sitt og fagnað mörkum síðustu vikur. Getty/Richard Callis Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, jafnaði met Liverpool-mannsins Mohamed Salah þegar hann var valinn besti leikmaður febrúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Rashford hefur farið á kostum eftir hléið vegna HM í Katar í desember og verið valinn leikmaður mánaðarins bæði í janúar og febrúar, auk þess sem hann var valinn bestur í september síðastliðnum. Þar með hefur Rashford jafnað met í eigu Salah sem einnig var valinn bestur í ensku úrvalsdeildinni þrjá mánuði á sömu leiktíð, veturinn 2017-18. Rashford skoraði fjögur mörk í fimm leikjum í febrúar og hefur alls skorað 26 mörk og átt níu stoðsendingar í öllum keppnum á þessari leiktíð. Fyrir þessa leiktíð hafði Rashford einu sinni verið valinn leikmaður mánaðarins. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United, var valinn stjóri febrúarmánaðar en United tók tíu stig úr þeim fjórum deildarleikjum sem liðið spilaði og er í 3. sæti deildarinnar. Ten Hag hafði áður verið valinn stjóri septembermánaðar. United byrjaði hins vegar marsmánuð á versta tapi sínu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, og raunar frá því fyrir seinni heimsstyrjöldina, þegar liðið tapaði 7-0 fyrir Liverpool á Anfield síðastliðinn sunnudag.
Enski boltinn Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Mætti í körfuboltakjól á hliðarlínuna Körfubolti Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Enski boltinn Græddi fjögur hundruð milljónir með því að grípa bolta í blálokin Sport Fleiri fréttir West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Sjá meira