Innlent

Jarðhiti í Öskjuvatni aukist verulega

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Öskjuvatn myndaðist í miklu eldgosi í öskju árið 1875.
Öskjuvatn myndaðist í miklu eldgosi í öskju árið 1875.

Jarðhiti í og við Öskjuvatn hefur aukist verulega í febrúar og ísinn á vatninu hefur svarað þeim hitabreytingum með því að gefa eftir. 

Þetta kemur fram í færslu sem birtist nú síðdegis á Facebook síðu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í eldfjallafræði og náttúruvá, sem fylgst hefur með vatninu undanfarnar vikur. Þar segir að í síðustu viku hafi teymi á vegum rannsóknarstofunnar fengið að fara með áhöfn TF Gnár í æfingaflug yfir vatnið.

„Með í för var hitamyndavél af FLIR gerð sem er stöðluð fyrir mælingar í náttúrunni. Við úrvinnslu mælinga kom í ljós að mestur er hitastraumurinn við Mývetningahraun, þar mældist hiti yfir 28°C næst hrauninu [...] og teygja hitastraumarnir sig út í vatnið. Frá Mývetningahrauni var síðan flogið með strönd vatnsins rangsælis. Mælingar sýna klár hitafrávik í vatnsborðinu frá Mývetningahrauni, eftir suðurströnd vatnsins og allt að Bátshrauni. Norður strönd vatnsins er hinsvegar „köld“. Daginn sem við flugum yfir var lagnaðarís við austurströnd vatnsins, en allur upp brotinn,“ segir í færslunni. 

Þá segir að Landsat, gervihnöttur á vegum Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, hafi flogið reglulega yfir. Á mánudag hafi skilyrði verið einkar góð, og hitagreining sýnt fram á að vatnið hitni jafnt og þétt.

„Á þessari greiningu sjáum við að stór hluti yfirborðsvatnsins er komin yfir 2°C (sem telst nokkuð hátt við vetrar aðstæður). Jafnframt sjáum við að hita streymið kemur frá Mývetningarhrauni fyrst og fremst (2°c jafnhitalína liggur upp að landinu þar) sem er í samræmi við mælingarnar sem gerðar voru með TF Gná á mánudag 20. febrúar.“

Þessar greiningar styðji við að jarðhiti hafi aukist verulega í og við Öskjuvatn í liðnum mánuði og ísinn svarað með því að gefa eftir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×