Bíó og sjónvarp

„Íslenski hesturinn var besti vinur minn"

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Noomi Rapace ólst að hluta til upp á hér á landi og tengist Íslandi sterkum böndum.
Noomi Rapace ólst að hluta til upp á hér á landi og tengist Íslandi sterkum böndum. Getty/Vittorio Zunino Celotto

Leikkonan Noomi Rapace segir undirbúninginn fyrir hlutverk hennar í sjónvarpsseríunni Django hafa hafist strax í barnæsku, enda sé hún alin upp í kringum íslenska hesta.

Django þættirnir eru væntanlegir til sýninga hjá Sky Atlantic í Bretlandi í byrjun mars en um er að ræða endurgerð af klassísku vestrakvikmyndinni Django frá 1966, en með nýju sniði.

Líkt og áður hefur komið fram tengist Noomi Íslandi sterkum böndum, en hún ólst að hluta til upp hér á landi, hjá sænskri móður sinni og íslenskum fósturföður á Flúðum. Hún er því alvön reiðmennsku.

Í samtali við Virgin Radio í Bretlandi segir Noomi að allt frá því hún var barn hafi hana dreymt um að leika í vestramynd, enda sé hún alin upp í kringum hesta. Hennar besti vinur í æsku var íslenski hesturinn hennar.

„Ég ólst upp á sveitabæ, átti enga vini og langaði alltaf að leika í vestramynd. Þannig að ég hef í raun verið að undirbúa mig undir þetta hlutverk alveg frá því ég var fjögurra ára gömul, á litlum íslenskum hestum.  Ég hef verið í kringum hesta eins lengi og ég man eftir mér,“ segir hún en bætir svo við að það sé reyndar ekki alltaf auðvelt að leika í atriði með hestum, enda láti þeir ekki alltaf að stjórn og geti verið óstýrilátir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.