Skoðun

Um endurskoðun samgöngusáttmálans

Helgi Áss Grétarsson skrifar

Síðastliðinn þriðjudag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að borgarstjórn samþykkti að virkja endurskoðunarákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en ritað var undir sáttmálann haustið 2019. Því miður náði tillagan ekki fram að ganga en umræða um hana í borgarstjórnarsalnum var fróðleg. Það er því ekki úr vegi að draga nokkur aðalatriði fram um efnið.

Vanefndir og hækkun framkvæmdakostnaðar

Í alþjóðlegu samhengi er höfðuðborgarsvæðið fámennt en um langa hríð hafa umferðartafir verið verulegar á virkum dögum á háannatímum. Talið er að kostnaður af umferðartöfunum sé umtalsverður. Það ætti því að vera ágreiningslaust að fjárfesta þarf verulega í samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Að þessu leyti boðar áðurnefndur samgöngusáttmáli ýmislegt jákvætt, t.d. að framkvæmdum verði flýtt við ýmsar mikilvægar stofnbrautir og fjárfest verði í bættri umferðarstýringu.

Eigi að síður er staðan sú, tæpum fjórum árum eftir undirritun sáttmálans, að margar af flýtiframkvæmdunum hafa miðast lítt áfram. Aðrir þættir sáttmálans hafa einnig tafist. Vanefndir á sáttmálanum eru því orðnar þó nokkrar, t.d. hefur lítið verið gert að bæta úr þeirri stöðu sem er við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar - framkvæmd sem átti að vera lokið 2021 samkvæmt samgöngusáttmálanum.

Samhliða vanefndum af þessu tagi hefur áætlaður framkvæmdakostnaður hækkað töluvert, farið samtals úr um 120 milljörðum kr. haustið 2019 í rúmlega 170 milljarða. Þótt verðlag hafi farið hækkandi þá veldur þessi hækkun áhyggjum enda gefur saga opinberra framkvæmda á Íslandi ekki tilefni til að ætla að svona stór opinber framkvæmd haldist innan ramma kostnaðaráætlunar. Rétt er því af hálfu gæslumanna skattgreiðenda að veita aðhald og hefja samtal um hvað verkefnið megi í raun og veru kosta og hver eigi að lokum að borga fyrir það.

Rekstur borgarlínu

Eiginlegar framkvæmdir við borgarlínu, sem er hluti af samgöngusáttmálanum, eru enn óhafnar. Framkvæmdakostnaðurinn af fyrirhugaðri borgarlínu er eitt, rekstrarútgjöld vegna þessa viðbótarstrætókerfis er annað. Óumdeilt er að fullnægjandi rekstraráætlun fyrir borgarlínu liggur ekki fyrir. Þetta er sérstakt áhyggjuefni fyrir reykvískra skattgreiðendur enda má ætla að það endi fyrst og fremst á herðum þeirra að greiða niður rekstur borgarlínunnar.

Framtíðarsýnin

Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um stöðu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og framtíðarhorfum hans, er fyllsta ástæða fyrir aðila sáttmálans að ræða hvaða verkefni eigi að setja í forgang. Kjörnir fulltrúar í Reykjavík eiga þar fyrst og fremst að gæta hagsmuna reykvískra skattgreiðenda. Leita þarf raunhæfra lausna, næg eru bjargráðin í þeim efnum. Mest er um vert að tryggja þarf farsæla framvindu og framkvæmd nauðsynlegra samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×