Tottenham hafði betur í Lundúnaslagnum og Chelsea í frjálsu falli Smári Jökull Jónsson skrifar 26. febrúar 2023 15:30 Harry Kane fagnar hér marki sínu í dag. Vísir/Getty Tottenham hafði betur gegn Chelsea í Lundúnaslag dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea hefur aðeins unnið einn deildarleik síðan í desember. Það er alltaf spenna fyrir Lundúnaslagi og leikurinn í dag var engin undantekning. Pierre Emil Hojbjerg skaut í stöng í fyrri hálfleik og undir lok hálfleiksins var Hakim Ziyech sýnt rauða spjaldið en það svo dregið til baka eftir að dómarinn fór og skoðaði atvikið í skjánum. Í síðari hálfleik voru það hins vegar heimamenn sem tóku frumkvæðið. Oliver Skipp skoraði frábært mark strax á fyrstu mínútu hálfleiksins og Tottenham komið í 1-0. Chelsea spýtti í lófana en komst frekar lítið áleiðis. Harry Kane tvöfaldaði forystu Tottenham á 82.mínútu þegar hann skoraði mark á fjærstönginni eftir hornspyrnu. Þetta var of mikið fyrir Chelsea. Tottenham fagnaði 2-0 sigri en þetta er fyrsti deildarsigur liðsins á Chelsea í fimm ár. Chelsea er hins vegar í frjálsu falli í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er í 10.sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið einn leik síðan 27.desember. Graham Potter situr vafalaust valtur í sessi í stjórastólnum. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti