Áhyggjufullir upplýsingafræðingar Anna Kristín Stefánsdóttir, Harpa Rut Harðardóttir, Irma Hrönn Martinsdóttir, Kristína Benedikz, Unnur Valgeirsdóttir og Vigdís Þormóðsdóttir skrifa 15. febrúar 2023 10:30 Upplýsing, fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða hélt pallborðsumræður um stöðu stéttarinnar þann 26. janúar sl. Þar áttu orðið landsbókavörður, borgarbókavörður, framkvæmdastjóri Landskerfis bókasafna, formaður stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga, prófessor í Upplýsingafræði Háskóla Íslands og verkefnastjóri á Landsbókasafni – Háskólabókasafni sem var fulltrúi áhyggjufullra upplýsingafræðinga. Tilefni fundarins voru áhyggjur stéttarinnar yfir endurteknum atvinnuauglýsingum í sérfræðistörf á bókasöfnum þar sem auglýst er eftir umsækjendum með háskólamenntun sem nýtist í starfi, fremur en að fara skýlaust fram á háskólamenntun í upplýsingafræði. Þessi þróun hefur vakið nokkurn ugg hjá stéttinni, sem þykir réttilega vegið að sínum hagsmunum. Skortur á fagmenntuðum upplýsingafræðingum Það sem forstöðumönnum var tíðrætt um á pallborðinu var að alla jafna sæki ekki nægilega margir hæfir upplýsingafræðingar um auglýstar stöður, eða jafnvel að engin umsókn berist frá upplýsingafræðingi. Því hafa forstöðumenn brugðið á það ráð að auglýsa eftir starfsfólki með háskólamenntun sem nýtist í starfi til þess að fá fleiri umsóknir og tryggja sig fyrir því að fá ekki á sig kærur frá faglærðum upplýsingafræðingum sem væru ekki metnir hæfir í starfið. Margar fagstéttir glíma við að stéttin sé fáliðuð en lausnin getur varla verið að stofnanir verji sig fyrir kærum með því að slá af kröfum um fagþekkingu. Nær væri að setja fagþekkingu í fyrsta sæti og efla hana með því að skapa hvata fyrir nýliðun í faginu. Það er fullkomlega eðlilegt að stofnun sé kærð fyrir að ráða ekki einstakling sem hefur sérmenntun í faginu umfram aðra; það er sú lagalega leið sem við höfum til að verja fagstéttir. Það er í raun ótrúlegt að forstöðumenn nýti sér þessa afsökun og velji þá leið að auglýsa eftir einstaklingi með hvaða háskólamenntun sem er í störf upplýsingafræðinga. Ef staðan er sú að það sé raunverulegur skortur á upplýsingafræðingum mætti líta á það sem raunverulegt sóknarfæri í markaðssetningu fyrir nám í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Einnig mætti nota þessi rök til þess að berjast fyrir betri launum stéttarinnar; samkvæmt þessu ættu þeir fáu upplýsingafræðingar sem eru í atvinnuleit að geta valið úr sérfræðistörfum og gert háar launakröfur í samræmi við sérfræðiþekkingu sína. Það er skammsýni að ráða fólk með aðra menntun í þessi sérfræðistörf, sem kemur á endanum niður á stéttinni, faginu og gæðum þess starfs sem unnið er á bókasöfnum. Það gefur auga leið að hvatinn fyrir því að leggja fyrir sig nám í upplýsingafræði minnkar ef önnur háskólamenntun er metin jöfn til að ganga í störf upplýsingafræðinga. Nám er fræðilegur grunnur Sú skoðun heyrðist á pallborðinu að það að þurfa að klára meistaranám til þess að fá að starfa sem upplýsingafræðingur væri óþarflega íþyngjandi og hamli nýliðun í stéttinni. Nám í upplýsingafræði var fært upp á meistarastig í byrjun aldarinnar, eins og fleiri námsgreinar á borð við náms- og starfsráðgjöf, blaða- og fréttamennsku og mannauðsstjórnun. En það eru nú um 10 ár síðan sú breyting var gerð og ef það er ekki raunhæft að færa námið aftur niður á grunn-námsstig, eða bæta við grunnnámi í upplýsingafræði, er öll umræða um að námsstigið sé íþyngjandi ekkert annað en fyrirsláttur til að afvegaleiða umræðu um stöðu stéttarinnar. Svona niðrandi umræða um framhaldsmenntun og óþarfa hennar heyrist varla þegar um er að ræða aðrar sérfræðistéttir með meistaramenntun, til að mynda þær sem taldar eru upp hér að ofan. Námið í upplýsingafræði er okkar fagmenntun og undirbýr okkur fyrir atvinnumarkaðinn. En eins og önnur sérfræðistörf er háskólamenntun hinn faglegi grunnur sem starfsreynsla síðan byggir á og skilar hæfum starfskrafti. Ef fagmenntunin er ekki til staðar, eða vanmetin kerfisbundið, molnar undan gæðum starfsemi bókasafna, hægt og örugglega. Fjölbreytt verkefni upplýsingafræðinga Störf upplýsingafræðinga eru mjög fjölbreytt. Þeir starfa á öllum skólastigum, sérfræðisöfnum, ráðuneytum og rannsóknarstofnunum. Starfssvið þeirra felur meðal annars í sér að skrá allan safnkost og rannsóknarafurðir þjóðarinnar og gera aðgengilegan. Auk þess er kennsla í upplýsingalæsi, svo sem að meta áreiðanleika heimilda og ábyrga notkun þeirra, veigamikill þáttur í starfinu. Mikilvægi upplýsingalæsiskennslu eykst í sífellu á tímum upplýsingaóreiðu og falsfrétta. Ekki má heldur gleyma öllum skjalastjórum landsins, en skjalastjórn er hluti af námi í upplýsingafræði. Eðlilega eru ýmis störf á bókasöfnum sem henta betur öðrum en upplýsingafræðingum, til að mynda hin mikilvægu störf bókavarða. En á meðan starfið felur í sér verkþætti eins og aðföng, skráningu, varðveislu, stjórnun, upplýsingaþjónustu, miðlun og öflun upplýsinga og upplýsingalæsi þá skýtur það skökku við að auglýsa ekki eftir manneskju sem hefur fjárfest í námi þar sem einmitt þessir verkþættir eru markvisst kenndir. Það var áhugavert að heyra sjónarmið forstöðumanna stærstu bókasafna landsins, en ljóst er að það hefði þurft lengri tíma til að gefa félagsmönnum tækifæri á að koma með spurningar og tjá sína skoðun. Okkur vantar upplýsingar úr grasrótinni; hvað upplýsingafræðingum finnst um stöðu stéttarinnar, atvinnuauglýsingar, atvinnutækifæri, námið, endurmenntun o.s.frv. Það er sárt að hugsa til þess að stærstu bókasöfn landsins standi ekki vörð um störf upplýsingafræðinga og virði ekki fagmenntun þeirra. Ef þau gera það ekki, hví ættu aðrir vinnuveitendur og sveitarfélög að gera það? Það er varhugaverð þróun að vanmeta sérfræðimenntun og opna sérfræðistörf fyrir fólki án viðeigandi menntunar. Slíkt kemur óhjákvæmilega niður á faglegum vinnubrögðum, nýsköpun og framþróun. Upplýsingafræðingar þurfa að standa vörð um sín sérfræðistörf og halda áfram að efla sitt fagnám, svo tryggja megi metnaðarfulla starfsemi bóka- og skjalasafna til framtíðar. Höfundar eru upplýsingafræðingar á háskólabókasafni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Woke-ið lifir! Bjarni Snæbjörnsson Skoðun Af hverju lýgur Alma? Arnar Sigurðsson Skoðun Ísland, Trump og Evrópa – hvað næst? Dagur B. Eggertsson Skoðun Forstjórinn á Neskaupstað Björn Ólafsson Skoðun Stígum upp úr skotgröfunum, æsku landsins til heilla! Ragnheiður Stephensen Skoðun Skólinn okkar, FSH Elmar Ægir Eysteinsson Skoðun Er varnarsamningurinn við Bandaríkin í hættu? Bjarni Már Magnússon Skoðun Trump kemur ekki á óvart, en Evrópa getur það Sveinn Ólafsson Skoðun Hitler og Stalín, Pútín og Trump Birgir Dýrfjörð Skoðun Orðið er þitt: Af orðsnillingum og hjálpardekkjum Lilja Dögg Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir - Framtíð Háskóla Íslands Áróra Rós Ingadóttir skrifar Skoðun Á krossgötum í Úkraínu Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar grafið er undan sjálfi, lífsgleði og tilgangi mannvera Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun St. Tómas Aquinas Árni Jensson skrifar Skoðun Skólinn okkar, FSH Elmar Ægir Eysteinsson skrifar Skoðun Föður- og mæðralaus börn Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Minni kvaðir - meira frelsi? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forstjórinn á Neskaupstað Björn Ólafsson skrifar Skoðun Woke-ið lifir! Bjarni Snæbjörnsson skrifar Skoðun Almennar skimanir fyrir ristilkrabbameini að hefjast Alma D. Möller skrifar Skoðun Plastflóðið Emily Jaimes Richey-Stavrand,Johanna Franke,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Baráttan á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Orðið er þitt: Af orðsnillingum og hjálpardekkjum Lilja Dögg Jónsdóttir skrifar Skoðun Farsæl reynsla af stjórnun og samvinnu Ingibjörg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Trump kemur ekki á óvart, en Evrópa getur það Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Ef það er vilji, þá er vegur Jóhanna Klara Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Magnús Karl Magnússon sem rektor – Skýr sýn á samvinnu og samtakamátt í vísindum Erna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju lýgur Alma? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Snúið til betri vegar Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Er varnarsamningurinn við Bandaríkin í hættu? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Stöðvum blóðmerahaldið á Íslandi Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland, Trump og Evrópa – hvað næst? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Þrjátíu ár af framförum – En hvaða áskoranir bíða? Birta B. Kjerúlf,Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Stígum upp úr skotgröfunum, æsku landsins til heilla! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Höfum gott fólk í forystu – kjósum Höllu í VR Gísli Jafetsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd og heyrnarskerðing – Grein í tilefni Dags heyrnar Elín Ýr Arnar skrifar Skoðun Hitler og Stalín, Pútín og Trump Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Til stuðnings Kolbrúnu Pálsdóttur í rektorskjöri Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Bætt réttindi VR félaga frá áramótum Halla Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar grafið er undan sjálfi, lífsgleði og tilgangi mannvera Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Magnús Karl Magnússon sem rektor – Skýr sýn á samvinnu og samtakamátt í vísindum Erna Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Þrjátíu ár af framförum – En hvaða áskoranir bíða? Birta B. Kjerúlf,Kjartan Ragnarsson skrifar