Lífið

Ri­hanna fékk ekki greitt fyrir hálf­leiks­at­riðið á Ofur­skálinni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Það eru eflaust ekki allir sem vita að Rihanna fékk ekki krónu fyrir atriði sitt á Ofurskálinni á sunnudaginn.
Það eru eflaust ekki allir sem vita að Rihanna fékk ekki krónu fyrir atriði sitt á Ofurskálinni á sunnudaginn. Getty/Gregory Shamus

Þrátt fyrir að stórbrotið hálfleiksatriði Rihönnu á Ofurskálinni hafi verið það næstmest áhorfða frá upphafi, fékk Rihanna ekki krónu fyrir það, ekki frekar en flytjendur fyrri ára.

Árið 2016 greindi Joanna Hunter, talskona NFL, frá því í viðtali við Forbes að flytjendur hálfleiksatriðanna fengju aldrei greitt fyrir atriðin. NFL tæki þó á sig framleiðslukostnað atriðanna og greiddi fyrir uppihald flytjenda.

Á meðal tónlistarfólks sem hefur komið fram á Ofurskálinni eru Beyonce, Michael Jackson, Britney Spears, U2, Lady Gaga, Coldplay, The Rolling Stones, Prince og Madonna, ásamt fleiri kanónum.

Samkvæmt frétt tónlistartímaritsins Billboard var atriði Rihönnu á sunnudaginn næstmest áhorfða hálfleiksatriði allra tíma, á eftir atriði Katy Perry frá árinu 2015.

Samkvæmt Billboard er atriði Katy Perry á Ofurskálinni árið 2015 mest áhorfða hálfleiksatriði allra tíma.Getty/Rob Carr

Nýtti tækifærið til þess að auglýsa snyrtivörumerkið

Einhverjir kunna að velta því fyrir sér hvernig NFL tekst að fá fremsta tónlistarfólk heims til þess að koma fram frítt ár eftir ár. Ástæðan er einföld, flytjendurnir fá bestu og dýrustu auglýsingu sem hugsast getur.

Yfir hundrað milljónir manns horfa á atriðið í beinni útsendingu og ennþá fleiri horfa á atriðið daginn eftir. Það þykja því mikil forréttindi að fá að koma fram á þessum stærsta sjónvarpsviðburði heims. Í stað þess að fá greiðslu nýtir tónlistarfólk gjarnan tækifærið og auglýsir væntanlegt tónleikaferðalag eða nýja tónlist.

Tónlistarkonan Rihanna fór þó óhefðbundnari leið og nýtti atriðið bæði til þess að tilkynna óléttu og til þess að auglýsa snyrtivörumerki sitt Fenty á lúmskan eða ekki svo lúmskan hátt.

Í miðju atriðinu tók hún upp Instamatte púður frá Fenty og púðraði á sér andlitið uppi á sviði. Uppátækið vakti mikla athygli og hafa erlendir miðlar greint frá því að leit að orðinu „Fenty Beauty“ hafi aukist margfalt eftir atriðið. Það má því gera fastlega ráð fyrir því að salan á púðrinu hafi rokið upp í kjölfarið.


Tengdar fréttir

Tákn­máls­túlkur Ri­hönnu slær í gegn

Kona sem sá um að túlka hálfleiksatriði söngkonunnar Rihönnu á Ofurskálinni á táknmáli hefur slegið í gegn á internetinu í dag. Sumir hafa kallað eftir því að túlkurinn fái verðlaun fyrir frammistöðu sína. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.