Innherji

Kostnaður við 90 daga neyðar­birgðir yrði olíu­fé­lögum of þung­bær

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Þórður Guðjónsson er framkvæmdastjóri Skeljungs.
Þórður Guðjónsson er framkvæmdastjóri Skeljungs. Skeljungur

Skeljungur, dótturfélag SKEL fjárfestingafélags, telur að rekstrargrundvöllur félagsins, sem og annarra olíufélaga, geti ekki staðið undir fjármagnskostnaði sem félli til vegna þeirra kvaða um birgðahald eldsneytis sem áformað er að leiða í lög. Nauðsynlegt sé að niðurgreiða aukið birgðahald enda sé það hlutverk ríkisins, ekki einkafyrirtækja, að tryggja þjóðaröryggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×