Tíska og hönnun

Breska fyrirsætan Mia Regan klæddist 66°Norður á tískuvikunni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Mia Regan með kærastanum, Romeo Beckham. Myndina til hægri tók Adam Katz Sinding í Kaupmannahöfn en myndin til vinstri er frá Darren Gerrish fyrir Getty.
Mia Regan með kærastanum, Romeo Beckham. Myndina til hægri tók Adam Katz Sinding í Kaupmannahöfn en myndin til vinstri er frá Darren Gerrish fyrir Getty. Samsett

Breska fyrirsætan Mia Regan var á tískusýningu 66°Norður í Kaupmannahöfn fyrir helgi. Hún sat þar á fremsta bekk, klædd í 66°Norður fatnað.

Vogue Scandinavia fjallaði fyrst um málið. Mia er kærasta Romeo Beckham og tengdaforeldrar hennar eru David og Victoria Beckham. Hinn tvítugi Romeo er atvinnumaður í knattspyrnu og leikur með Miami í bandarísku úrvaldsdeildinni. Mia starfar sem fyrirsæta en hún er einnig tvítug að aldri. 

Fyrirsætan Mia ReganAdam Katz Sinding

Parið hafði verið saman í rúm þrjú ár þegar þau tilkynntu snemma á síðasta árin að þau væru hætt saman en örvar Amors hafa greinilega hitt í mark því þau byrjuðu aftur saman skömmu fyrir jól.

Mia hefur sést víða á tískuvikunni síðustu daga en hér fyrir neðan má sjá hana í samstarfshönnun Ganni og 66°Norður, sem fjallað var um á Lífinu fyrir helgi. 

Fyrirsætan Mia Regan.Adam Katz Sinding

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.