Sunna, sem er tilnefnd af VR og kom fyrst inn í stjórn lífeyrissjóðsins eftir ársfund hans fyrir tæplega einu ári síðan, er menntaður viðskiptafræðingur, Cand. Oecon, frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið diplóma í alþjóðasamskiptum frá sama skóla.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er annar stærsti lífeyrissjóður landsins með eignir upp á liðlega 1.200 milljarða króna í stýringu.
Sunna hefur verið hjá Íslensku óperunni frá 2019 en var áður með eigin rekstur í reikningshaldi og tengdri ráðgjöf. Hún hefur einnig starfað við reikningshald og endurskoðun hjá PwC á Íslandi og í Noregi gegndi um tíma starfi framkvæmdastjóri fjölmiðils. Þá á hún sæti í endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar, tilnefnd af stjórn Orkuveitunnar frá árinu 2014, og hefur verið í stjórn Parkinsonsamtakanna á Íslandi síðan 2020.
Guðrún Johnsen hafði setið í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna frá árinu 2019 og var um tíma efnahagsráðgjafi VR. Hún var einn fjögurra stjórnarmanna sem VR skipaði í stjórn sjóðsins það ár eftir að fulltrúaráð félagsins ákvað að afturkalla umboð þáverandi stjórnarmanna. Áður hafði stjórn VR lýst yfir trúnaðarbresti gagnvart stjórnarmönnum félagsins hjá LV vegna samþykktar stjórnar hans um hækkun breytilegra vaxta verðtryggðra sjóðfélagalána.
Stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna er skipuð átta mönnum. Fjórir eru tilnefndir af VR, þrír af Samtökum atvinnulífsins og einn af Félagi atvinnurekenda. Núverandi stjórnarformaður sjóðsins er Jón Ólafur Halldórsson, fyrrverandi forstjóri Olís, en Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR, er varaformaður.
Klinkið er vettvangur Innherja þar sem dregin er upp mynd og veitt innsýn í bakherbergi viðskipta, stjórnmála og atvinnulífs á landinu.