Bíó og sjónvarp

Blonde með flestar til­nefningar til Razzi­e-verð­launanna

Atli Ísleifsson skrifar
Ana de Armas fer með hlutverk Marilyn Monroe í kvikmyndinni Blonde.
Ana de Armas fer með hlutverk Marilyn Monroe í kvikmyndinni Blonde. Netflix

Kvikmyndin Blonde, þar sem segir frá ævi leikkonunnar Marilyn Monroe, hefur hlotið flestar tilnefningar til Razzie-verðlaunanna svokölluðu.

Blonde hlaut átta tilnefningar og fast á hæla þeirrar myndar kemur myndin Good Mourning, gamanmynd með og eftir rapparann Machine Gun Kelly, með sjö tilnefningar. Ný kvikmynd Disney um Gosa hlýtur hlaut sex tilnefningar.

Frá þessu var greint í gær. 

Skipuleggjendur Razzie-verðlaunanna lýsa verðlaununum sem „ljóta frænda Óskarsverðlaunanna“, þar sem þeir „verðlauna“ það sem þeir telja verstu myndir ársins sem og verstu frammistöðu einstakra leikara í kvikmyndum ársins. Verðlaunin verða afhent 11. mars, degi á undan Óskarsverðlaunahátíðinni.

Athygli vekur að stórleikarinn Tom Hanks hlýtur þrjár tilnefningar, meðal annars fyrir frammistöðu sína í Elvis. Myndin Elvis, í leikstjórn Baz Luhrmann, hefur annars hlotið góða dóma og hlaut meðal annars níu tilnefningar til BAFTA-verðlauna. Þá hlaut Austin Butler, aðalleikari myndarinnar, Golden Globe-verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki.

Talsverður fjöldi stórleikara hafa áður unnið til Razzie-verðlauna, meðal annars Leonardo DiCaprio, Eddie Redmayne, Ben Affleck, Halle Berry, Sandra Bullock, Sir Laurence Olivier, Al Pacino og Marlon Brando.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.