Yfirvöld loka Machu Picchu vegna mótmælanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. janúar 2023 09:12 Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar. Getty Stjórnvöld í Perú hafa lokað einum vinsælasta ferðamannastað landins, Machu Picchu, vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Þau segja ákvörðunina tekna til að vernda ferðamenn og almenna borgara.
Yfir 400 manns sem höfðu lagt leið sína að þessari mikilfenglegu virkisborg Inka sátu fastir þegar lestarsamgöngur voru lagðar niður á fimmtudag. Það var gert í kjölfar þess að skemmdir voru unnar á lestarteinum en yfirvöld hafa vísað ábyrgðinni á hendur mótmælendum. Búið er að flytja fólkið frá staðnum. Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar og heimsóttur af um milljón manns á ári hverju. Sumir velja að ganga að virkisborginni eftir svokallaðri Inka-slóð, sem tekur nokkra daga. Henni hefur einnig verið lokað. Menningarmálaráðueytið í Perú hefur sagt að þeir sem hafa þegar keypt aðgangsmiða að Machu Picchu geti notað miðan í mánuð eftir að mótmælunum í landinu lýkur eða fengið endurgreitt. Tugir hafa látið lífið í mótmælunum en mótmælendur vilja forsetann, Dinu Boluarte, frá og krefjast nýrra þingkosninga. Þá krefjast þeir þess að forveri Boluarte, Pedro Castillo, verði látinn laus úr fangelsi. Hann hefur verið ákærður fyrir uppreisn og samsæri en neitar sök og segist réttmætur leiðtogi landsins. Evrópusambandið hefur fordæmt ofbeldið sem ríkir í landinu og valdbeitingu lögreglu.
Perú Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira