Handbolti

Elvar inn fyrir Elvar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar Ásgeirsson leikur sinn tólfta landsleik í dag.
Elvar Ásgeirsson leikur sinn tólfta landsleik í dag. vísir/hulda margrét

Guðmundur Guðmundsson gerir eina breytingu á leikmannahópi íslenska karlandsliðsins fyrir leikinn gegn Suður-Kóreu í D-riðli heimsmeistaramótsins á eftir.

Elvar Örn Jónsson er veikur og getur þar af leiðandi ekki tekið þátt í leiknum gegn Suður-Kóreumönnum. Í hans stað kemur nafni hans, Elvar Ásgeirsson.

Elvar er á sínu öðru stórmóti en hann átti eftirminnilega innkomu á EM í fyrra. Mosfellingurinn leikur með Ribe-Esbjerg í Danmörku. Hann hefur leikið ellefu landsleiki og skorað sautján mörk.

Leikur Íslands og Suður-Kóreu hefst klukkan 17:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×