Lífið

Pi­ers Morg­an seg­ir Harr­y reyn­a að skað­a og særa kon­ungs­fjöl­skyld­un­a

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Harry fyrir utan The Late Show With Stephen Colbert í gær.
Harry fyrir utan The Late Show With Stephen Colbert í gær. Getty/ Gotham/GC Images

„Ég sé ekkert annað en Prince Harry þessa dagana, hann er alls staðar,“ segir Birta Líf Ólafsdóttir slúðurspekingur og hlaðvarpsstjórnandi. 

Harry hefur verið gestur í fjölda spjallþátta síðustu daga að kynna bók sína Spare. 

„Piers Morgan er brjálaður,“ sagði Birta Líf um viðbrögðin við bókinni í Brennslunni í dag. Sjálf er hún spennt að lesa, en bókin er komin út og má finna hana meðal annars á Amazon og Audiable í upplestri höfundarins. 

Piers Morgan hefur kallað bókina rusl og til skammar. Hann segist hafa hlegið upp hátt yfir vitleysunni og telur að Harry hafi með bókinni viljað særa konungsfjölskylduna og skaða fjölskyldumeðlimi. Gagnrýnir hann Harry fyrir að þiggja peninga fyrir að smána fjölskylduna og landið sitt. 

„Hann er að uppljóstra öllum stærstu leyndarmálum fjölskyldu sinnar og við erum að tala um stærstu fjölskyldu í heimi,“

segir Birta. Harry verður í viðtali hjá Stephen Colbert á CBS í nótt og bíða margir spenntir eftir því að heyra hvað hann hefur að segja. 

Kanye West er ekki týndur, Illuminati kenningar, sambandsslit Kylie Jenner og Travis Scott og móðurmissir Tristan Thompson er einnig á meðal þess sem rætt var í Brennslutei vikunnar á FM957 fyrr í dag. 

Birta Líf Ólafsdóttir mætir vikulega í Brennsluna og fer yfir það helsta í slúðrinu frá Hollywood. Innslagið má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Brennslute vikunnar með Birtu Líf

Tengdar fréttir

Bóka­verslanir opnuðu á mið­nætti þegar Spare fór í sölu

Bókaverslanir í Lundúnum opnuðu á miðnætti í nótt, þegar æviminningar Harry Bretaprins fóru í sölu. Raðir mynduðust fyrir utan verslanirnar og talsmenn keðjunnar Waterstone sögðu um að ræða eina mestu forsölu bókar síðasta áratuginn.

Varaskeifan segir frá: Manndráp í Afganistan, kókaín og fjölskylduerjur

Eintök af nýrri sjálfsævisögu Harry Bretaprins sem nefnist „Spare“ eða „Varaskeifan“ hafa valdið miklum usla hjá þeim meðlimum bresku pressunnar sem hafa fengið að lesa bókina á undan almenningi. Í bókinni talar Harry um það þegar hann tapaði sveindómnum, notaði kókaín og drap 25 í Afganistan.

„Ég vildi fjölskylduna, ekki stofnunina“

„Ég vil fá föður minn aftur, ég vil fá bróður minn aftur,“ segir Harry Bretaprins í viðtali við ITV sem verður birt 8. janúar næstkomandi, tveimur dögum fyrir útgáfu bókarinnar Spare.

Ævi­saga „vara­skeifunnar“ kemur út 10. janúar

Ævisaga Harry Bretaprins og hertoga af Sussex er væntanleg í verslanir 10. janúar næstkomandi. Bókin ber titilinn „Spare“, sem mætti þýða sem „Varaskeifa“ á íslensku en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.