Trúir ekki að United ætli að fá Weghorst: „Þetta hlýtur að vera hrekkur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. janúar 2023 11:00 Wout Weghorst fagnar eftir að hafa skorað eftirminnilegt mark eftir aukaspyrnu í leik Hollands og Argentínu á HM 2022. getty/Patrick Smith Wesley Sneijder trúir því ekki að Manchester United ætli að semja við hollenska framherjann Wout Weghorst og segir að um hrekk hljóti að vera að ræða.
United ku vera í viðræðum við Burnley um að fá Weghorst lánaðan út tímabilið. Hann hefur spilað með Besiktas í Tyrklandi í vetur. Weghorst gerði vel með hollenska landsliðinu á HM í Katar og skoraði meðal annars bæði mörk þess gegn Argentínu í átta liða úrslitunum. Sneijder segir að United-menn hljóti að hafa látið glepjast af því. „Sem framherji, er hann virkilega það sem United hefur verið að bíða eftir? Ég held ekki. Það eru svona þrjú hundruð svona leikmenn í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Sneijder. „Þetta hlýtur að vera hrekkur. Þetta getur ekki verið satt.“ Burnley keypti Weghorst fyrir ári en hann náði sér ekki á strik með liðinu á síðasta tímabili og skoraði aðeins tvö mörk í tuttugu leikjum fyrir það. Hinn þrítugi Weghorst skoraði hins vegar grimmt með Wolfsburg í Þýskalandi, alls sjötíu mörk í 144 leikjum. Í vetur hefur Hollendingurinn svo skorað níu mörk í átján leikjum fyrir Besiktas.
Enski boltinn Mest lesið Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Körfubolti Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Enski boltinn Leik lokið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi Íslenski boltinn Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Íslenski boltinn Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Fótbolti „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Í beinni: Man. City - Aston Villa | Mikilvægur leikur í Meistaradeildarbaráttunni Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Man. City - Aston Villa | Mikilvægur leikur í Meistaradeildarbaráttunni United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Sjá meira