Skytturnar kláraðu C-deildar­liðið í seinni hálf­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Eddie Nketiah skoraði tvö mörk í kvöld.
Eddie Nketiah skoraði tvö mörk í kvöld. Catherine Ivill/Getty Images

D-deildarlið Stevenage lagði úrvalsdeildarlið Aston Villa í gær en Oxford þyrfti að draga enn stærri kanínu upp úr hatti í kvöld gegn besta liði Englands, Arsenal. 

Staðan var hins vegar markalaus í hálfleik og enn sá möguleiki til staðar að Oxford væri á leiðinni í næstu umferð. Sá möguleiki dó í síðari hálfleik þegar Eddie Nketiah skoraði tvívegis og Mohamed Elneny einu sinni. 

Lokatölur 3-0 Arsenal í vil og Skytturnar komnar í fjórðu umferð FA bikarsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira