Talinn hafa ekið viljandi niður þverhnípið með fjölskylduna innanborðs Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. janúar 2023 10:16 Frá vettvangi í Kaliforníu. Slys eru tíð á þessum kafla vegarins. Getty/Anadolu Agency Lögregla í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna telur að ástæða sé til að ætla að ökumaður Tesla-bíls hafi ekið viljandi út af veginum við þverhníptar strendur Kyrrahafs, með fjölskyldu sína innanborðs. Ökumaðurinn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Björgunarafrek lögreglu og slökkviliðs í Kaliforníu í fyrradag vakti heimsathygli eftir að fjögurra manna fjölskyldu var bjargað úr flaki Tesla-bílsins, eftir að hann hafði steypst niður 76 metra þverhnípi við hinn svokallaða þjóðveg 1 í ríkinu, skammt frá San Francisco. Fjórir voru um borð í bílnum, tveir fullorðnir auk tveggja barna á aldrinum fjögurra og níu ára. Mikil mildi þykir að þau hafi öll sloppið án lífshættulegra meiðsla. Rannsókn á slysinu hófst þegar í stað af hálfu lögreglu. Hefur hún nú gefið út að miðað við sönnunargögn sem safnað hafi verið á vettvangi, auk viðtölum við vitni, sé ástæða til þess að ætla að ökumaður bílsins, hafi ekið viljandi út af veginum og niður þverhnípið. Hefur ökumaðurinnn, faðir barnanna tveggja sem um borð í bílnum var og eiginmaður farþegans sem sat í framsætinu, verið handtekinn vegna málsins, grunaður um tilraun til manndráps. Mun hann vera fluttur í fangelsi eftir að hann útskrifast af spítala. Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort ökumaðurinn verði sóttur til saka vegna málsins. Myndband frá vettvangi má sjá hér að neðan.
Tesla Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Friðhelgin stórauki vald forsetans Erlent „Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Innlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Umræðan verði að vera málefnaleg Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Sjá meira