Lífið

Þótti eiginmaðurinn óþolandi í tíu ár

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Obama hefur verið á ferðalagi að kynna nýjustu bók sína.
Obama hefur verið á ferðalagi að kynna nýjustu bók sína. Getty/ABA/Derek White

Michelle Obama þoldi ekki eiginmann sinn Barack í um það bil tíu ár, á meðan dætur þeirra voru ungar. Frá þessu greindi fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna í viðtali við Revolt TV í síðustu viku.

Obama sagði barnauppeldið hafa tekið sinn toll af hjónabandinu, ekki síst vegna þess hversu álaginu af umönnun dætrana var misskipt. Bæði Michelle og Barack voru á framabraut þegar dæturnar fæddust en Michelle sat eftir heima með börnin á meðan stjarna Barack reis innan Demókrataflokksins.

„Og í tíu ár, á sama tíma og við vorum að byggja starfsferil okkar og hafa áhyggjur af skólanum og hver er að gera hvað, þá var ég bara... ugh, þetta er ekki jafnt,“ sagði Michelle. „Og gettu hvað? Hjónaband er ekki 50/50, aldrei nokkurn tímann.“

Michelle sagði hlutfallið stundum 70/30, stundum 60/40, þegar kæmi að umönnun dætranna. En þrátt fyrir allt þá væru tíu erfið ár af þrjátíu ekki svo slæmt. 

Obama er nú að kynna bók sína The Light We Carry og hefur vakið athygli fyrir breytt útlit.

Á meðan hún var forsetafrú klæddist hún jafnan vel sniðnum kjólum, gjarnan eftir unga og upprennandi hönnuði. Þá vakti hún athygli fyrir sterklega upphandleggi sína, sem hún var ófeimin við að sýna.

Við kynningu bókarinnar hefur hún hins vegar klæðst meira ögrandi fatnaði, ef svo má að orði komast, og leyft sér að leika sér með hárið á sér. Nokkuð sem hún gerði aldrei í Hvíta húsinu, þar sem hún taldi bandarísku þjóðina ekki reiðubúna fyrir forsetafrú með hefðbundnar svartar hárgreiðslur.

Hún hefur einnig tjáð sig um börnin sín... ja, eða börn almennt.

„Litlir krakkar; þeir eru eins og hryðjuverkamenn. Þeir gera kröfur. Þeir tala ekki. Þeir eiga erfitt með tjáskipti. Þeir eru alltaf grátandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.