Tíska og hönnun

Vivienne Westwood er látin

Árni Sæberg skrifar
Vivienne Westwood er látin.
Vivienne Westwood er látin. Samir Hussein/Getty

Vivienne Westwood, einn áhrifamesti fatahönnuður samtímans, er látin. Hún varð 81 árs gömul.

Í tilkynningu á Twittersíðu Westwood segir að hún hafi látist í faðmi fjölskyldu sinnar á heimili hennar í Lundúnum.

Í frétt breska ríkisútvarpsins segir að hún hafi skotist upp á stjörnuhimininn á áttunda áratug síðustu aldar. Hún varð fljótt þekkt fyrir að hanna föt í anda pönksins og nýbylgjunnar sem riðu röftum í Englandi á áttunda áratugnum.

„Ég mun halda áfram með Vivienne í hjarta mínu. Við unnum saman allt til endaloka og hún hefur gefið mér nægan efnivið til að halda áfram,“ er haft eftir Andreas Kronthaler, eiginmanni hennar og samstarfsmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.