Bíó og sjónvarp

Brjóst í ríkis­sjón­varpinu fara fyrir brjóstið á Norð­mönnum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Norsku stjörnurnar þurftu að reyna að fá fjölskylduna til að hlæja.
Norsku stjörnurnar þurftu að reyna að fá fjölskylduna til að hlæja.

Eitt af jóladagatölum norska ríkissjónvarpsins, NRK, er afar umdeilt eftir innslag í þættinum á mánudaginn í þessari viku. Þar fór áhrifavaldur úr að ofan og bauð gestum mjólk í kaffið sitt. 

Jóladagatalið ber nafnið 24-stjerners julekalender, eða jóladagatal 24 stjarna. Í því keppast 24 frægir norskir einstaklingar um titilinn „Hin eina sanna jólastjarna“. Um er að ræða raunveruleikaþætti en líkt og venjan er með jóladagatöl þá birtist einn þáttur dag hvern í desember fram að jólum. 

Það er tólfti þáttur dagatalsins sem hefur vakið hvað mesta athygli fólks. Þar áttu stjörnurnar að reyna að fá fimm manna fjölskyldu og stjórnanda þáttanna, Markus Neby, til að hlæja sem mest. Til þess fékk fólkið tvær mínútur. 

Uppátæki áhrifavaldsins Øyunn Krogh til að fá fjölskylduna til að hlæja er afar umdeilt meðal norsku þjóðarinnar samkvæmt umfjöllun Dagbladet.

Hún fór úr að ofan, greip utan um brjóst sín og spurði fjölskylduna hvort það mætti ekki bjóða þeim brjóstamjólk í kaffið sitt. Fjölskyldan tók vel í þetta og sigraði Øyunn keppnina. 

„Ógeðsleg hegðun,“ og „Ég skil ekki að NRK vilji sýna þetta,“ eru meðal ummæla um þáttinn sem Dagbladet fjallar um. 

Verkefnastjóri hjá NRK, Mirja Minares, gefur lítið fyrir þessa gagnrýni og bendir á að fyrr í dagatalinu hafi tveir aðrir keppendur farið úr að ofan, þeir Tete Lidblom og Emil Gukild. 

„Ég er meðvituð um að margir telji að brjóst séu eitthvað sem fólk ætti ekki að sjá í sjónvarpi. En þar sem fjölskyldan hafði gaman af þessu þá sáum við ekkert að því að birta efnið,“ hefur Dagbladet eftir Minares. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.