Bíó og sjónvarp

Parks and Recs leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin

Bjarki Sigurðsson skrifar
Helen Slayton-Hughes var 92 ára er hún lést.
Helen Slayton-Hughes var 92 ára er hún lést. Getty/Michael Tullberg

Bandaríska leikkonan Helen Slayton-Hughes er látin, 92 ára að aldri. Slayton-Hughes er best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Parks and Recreation. Fjölskylda hennar greindi frá andlátinu á Facebook í dag. 

Slayton-Hughes lék hina drykkfelldu og óútreiknanlegu Ethel Beavers sem starfaði sem dómritari í Pawnee. Hún kom reglulega fram í þáttunum og sló alltaf rækilega í gegn. 

Slayton-Hughes fæddist árið 1930 en byrjaði ekki að leika fyrr en árið 1980 þegar hún var orðin fimmtug. Hún lék í kvikmyndum á borð við Mafia on the Bounty, Good Night and Good Luck og Shoot the Moon. Þá kom hún fram í vinsælum þáttum eins og New Girl, Brooklyn Nine-Nine og Arrested Development. 

Hún hafði glímt við ýmis veikindi síðustu ár lífs síns og segir fjölskylda hennar að sársauki hennar hafi endað en að andi hennar lifi enn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.