Lífið

Hefur þú efast um faðerni þitt eða barns þíns?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Samkvæmt tölum Íslenskrar erfðagreiningar frá árinu 2020 virðist 1.9% íslensku þjóðarinnar rangfeðruð eða hátt í tveir af hverjum hundrað Íslendingum.
Samkvæmt tölum Íslenskrar erfðagreiningar frá árinu 2020 virðist 1.9% íslensku þjóðarinnar rangfeðruð eða hátt í tveir af hverjum hundrað Íslendingum. Getty

Frásagnir og vangaveltur um rangfeðranir á Íslandi koma reglulega upp í samfélagsumræðunni þó svo að algengi rangfeðrunar hafi lækkað töluvert með árunum.

Samkvæmt tölum Íslenskrar erfðagreiningar frá árinu 2020 virðist 1.9% íslensku þjóðarinnar rangfeðruð eða hátt í tveir af hverjum hundrað Íslendingum.

Rangfeðranir eru, eins og gefur að skilja, persónuleg mál og flókin og oftar en ekki einstaklega viðkvæm fyrir þá sem í hlut eiga.

Það er fólk sem hefur efast um líffræðilegt faðerni sitt, feður sem hafa efast um líffræðileg tengsl við börn sín og sömuleiðis mæður sem hafa efast um faðerni barna sinna. Margir og ólíkir vinklar, allavega aðstæður og upplifanir.

Sumir láta til skara skríða og kalla eftir faðernisprófi á meðan aðrir láta kyrrt liggja þrátt fyrir sterkan grun. En hversu algengt ætli það sé nú á dögum að fólk efist um svona stór mál?

Spurning vikunnar er að þessu sinni tvískipt og er fólk beðið um að svara báðum könnunum.


Hefur þú efast um faðerni þitt? 

Hefur þú efast um faðerni barns þíns/barna þinna? 


Makamál hafa síðustu þrjú ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.Um 86 prósent segjast nota kynlífstæki með makaÞarf ekki alltaf flugelda til að halda í neistann í hjónabandinu


Tengdar fréttir

Er sam­fé­lags­miðla­notkun maka vanda­mál í sam­bandinu?

Þó svo að samfélagsmiðlar séu oft á tíðum vettvangur fyrstu kynna, daðurs og rómantískra skilaboða, getur samfélagsmiðlanotkun einnig verið valdið ýmiskonar erfiðleikum og vandamálum í ástarsamböndum til lengri tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.