Erlent

Margir spenntir en aðrir varkárir eftir að Mauna Loa vaknaði

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Íbúabyggð er ekki í hættu að svo stöddu og margir áhugasamir hafa lagt leið sína að fjallinu til að fylgjast með sjónarspilinu. 
Íbúabyggð er ekki í hættu að svo stöddu og margir áhugasamir hafa lagt leið sína að fjallinu til að fylgjast með sjónarspilinu.  AP/Marco Garcia

Mikið sjónarspil blasir við á Hawaii þar sem hraun streymir úr stærsta virka eldfjalli heims. Gos hófst í Mauna Loa eldfjallinu aðfaranótt mánudags í fyrsta sinn í fjörutíu ár og Íslendingar kannast eflaust vel við appelsínugula bjarmann og bjarta hraunsprunguna í líkingu við það sem þar má nú sjá. 

Byggð er ekki í hættu að svo stöddu og talið er að hraunið, sem rennur nú niður háar fjallshlíðarnar, nái ekki niður að íbúabyggð fyrr en eftir viku í fyrsta lagi. Almannavarnir landsins fylgjast þó vel með stöðu mála og hafa varað viðkvæma við útiveru á svæðinu vegna brennisteinsmengunar.

David Ige, ríkisstjóri Hawaii, skrifaði undir neyðaryfirlýsingu í gær vegna gossins sem gerir þeim kleift að gefa út viðvaranir og framfylgja brottflutningum ef til þess kemur. 

Neyðarskýli voru opnuð á Kona og Kau svæðunum eftir að eldfjallið byrjaði að gjósa en þeim var lokað í gær. Einhverjir íbúar á svæðinu hafa engu að síður ákveðið að færa sig annað á meðan aðrir eru með varann á. 

Nicole Skilling, íbúi á svæðinu, var tilbúin fyrir allt þegar AP fréttaveitan náði tali af henni. AP/Caleb Jones

AP fréttastofan ræddi meðal annars við Nicole Skilling sem hafði fjórum árum áður þurft að flýja heimili sitt eftir að stór hluti byggðar varð um 700 heimilum að bráð þegar Kīlauea gaus árið 2018. Kīlauea gaus aftur í fyrra og flæðir enn úr fjallinu ári síðar. 

Hún hafði ekki tekið ákvörðun um hvort hún myndi færa sig um set þegar fréttastofan náði tali af henni en var tilbúin með birgðir í bílnum sínum í versta falli. 

Á sama tíma hafa margir haldið að gosstöðvunum til að sjá sjónarspilið með berum augum. Yfirvöld á svæðinu hafa bannað fólki að leggja á svæði nálægt gosstöðvunum en margir áhugasamir hafa einfaldlega lagt ólöglega á svæðinu. 

Gostungurnar teygja sig nú um 35 til 40 metra upp í loftið en hraunflæðið er talið frekar hægt, innan við tveir kílómetrar á klukkustund. 

Bjarminn frá gosinu sást víða á mánudag. AP/Marco Garcia
Getty/USGS
Getty/Andrew Richard Hara
AP/Marco Garcia
Margir héldu að gosstöðvunum, þrátt fyrir að yfirvöld höfðu bannað bílum að leggja á svæðinu. AP/Marco Garcia
AP/Marco Garcia
AP/Marco Garcia
AP/Marco Garcia
Getty/Andrew Richard Hara
AP/Marco Garcia
AP/Marco Garcia

Tengdar fréttir

Stærsta eld­fjall jarðar byrjað að gjósa

Eldgos hófst í Mauna Loa, stærsta virka eldfjalli jarðar, á Havaí í nótt. Hraunrennsli er enn bundið við tind fjallsins og ógnar það ekki nærliggjandi byggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×