Skoðun

Veikt eða slasað barn skal eiga rétt á um­önnun for­eldra

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar

Á undanförnum árum hefur umræða um rétt og réttindi barna farið vaxandi. Þetta má m.a. rekja til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna sem gjarnan er nefndur barnasáttmálinn. Réttur barns til samvista við foreldra og til umönnunar telst til mikilvægustu réttinda sáttmálans og felur í sér einn af hornsteinum hans. Í því sambandi má benda á að samningurinn leggur m.a. þær skyldur á aðildarríkin að tryggja réttindi veikra og slasaðra barna.

Í september lagði ég fram frumvarp í þriðja sinn þar sem lagt er til að kveðið verði sérstaklega á um það í barnalögum að í forsjárskyldu felist að veikt eða slasað barn eigi rétt á umönnun foreldra sinna. Leggja þarf sérstaka áherslu á rétt barna til að njóta umönnunar foreldra eða forráðamanna þegar það er veikt eða slasað. Þótt þessi réttur sé þegar fyrir hendi kemur hann þó hvergi beint fram í lögum og er með frumvarpinu lagt til að úr því verði bætt. Samhliða frumvarpinu flyt ég nú þingsályktunartillögu um að félags- og vinnumarkaðsráðherra verði falið að koma á fót starfshópi til að kanna hvernig foreldrum barna verði gert kleift að rækja þessa skyldu með samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins eða með setningu reglna á þeim vettvangi.

Tilefni þess að árétta þennan rétt veikra og slasaðra barna í lögum er að rétturinn til að vera með og sinna veiku eða slösuðu barni hefur fyrst og fremst verið réttindi foreldris eða þess sem fer með forsjána frekar en að vera réttur barnsins sjálfs. Í því sambandi má benda á að kjarasamningar á íslenskum vinnumarkaði hafa í langflestum tilvikum haft að geyma ákvæði um rétt foreldra til að sinna veikum börnum og þannig er rétturinn tengdur starfi og ráðningarsambandi forsjáraðila og vinnuveitanda. Með því að mæla fyrir um þennan sjálfstæða rétt barnsins er gert ráð fyrir að búið verði svo um hnútana á vinnumarkaði að rétturinn verði virtur þannig að hverju og einu barni verði tryggður þessi réttur.

Þannig kann að vera að foreldri sem á fleiri en eitt barn verði að deila réttindum sínum milli barna sinna. Einbirni sem veikist eða slasast og á tvo foreldra á vinnumarkaði er því í betri stöðu og gæti átt rétt á 20–30 dögum með foreldrum sínum. Veikt eða slasað barn úr systkinahópi sem deila þarf dögum gæti því aðeins notið fáeinna daga ef aðstæður haga því þannig að systkini viðkomandi hafi einnig orðið veik. Munurinn á réttindum barna getur því verið umtalsverður og á sama hátt geta möguleikar foreldris á að sinna börnum sínum verið mjög mismunandi. Réttindin eru því ekki aðeins réttur foreldra á launuðu leyfi úr vinnu til að annast veikt barn heldur fremur réttur barnsins til að njóta þeirrar umönnunar sem það þarfnast.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna. 




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×