Viðskipti innlent

Pósthús mathöll opnuð og allir dansa kónga

Elísabet Hanna skrifar
Þórður Axel er einn þeirra sem stendur að opnun mathallarinnar.
Þórður Axel er einn þeirra sem stendur að opnun mathallarinnar. Aðsend

Mathöllin í gamla pósthúsinu opnar í dag eftir sex ára undirbúning. Markmið mathallarinnar er að vera sú skemmtilegasta á landinu. Stór nöfn á borð við Yesmine Olsson, Hauk á Yuzu og Sigga Hall eru öll hluti af verkefninu og leiddi sá síðast nefndi alla í kónga í tilefni dagsins.

Hér að neðan má sjá veitingafólk á mathöllinni taka nokkur spor í tilefni opnunarinnar:

Klippa: Pósthús mathöll opnar dyrnar

Á bak við mathöllina standa Leifur Welding, Ingvar Svendsen, Hermann Svendsen og Þórður Axel Þórisson. Staðirnir í mathöllinni eru níu talsins, átta veitingastaðir og einn bar, og má sjá lista yfir þá hér að neðan: 

  • Funky bhangra - óhefðbundinn indverskur
  • Pizza Popolare
  • Fuku Mama - asískt grill
  • Yuzu Burger
  • Finsen - franskur bistro
  • Enoteca - pasta, hráskinka og ostar
  • Drykk - bar með áherslu á kokteila
  • Mossley - taco og vængir
  • Djusi Sushi by sushi social
Mathöllin opnar í dag.Aðsend

Tengdar fréttir

Stjörnu­torg verður að Kúmen

Nýtt veitinga- og afþreyingasvæði Kringlunnar hefur fengið nafnið Kúmen. Sautján veitingastaðir verða á svæðinu en nokkrir þekktir staðir Stjörnutorgs munu hverfa á brott. 

Mat­höllin opni á næstu mánuðum

Mathöllin á Pósthússtræti 5 er í þann mund að verða tilbúin af orðum Leifs Welding, eins eigenda mathallarinnar að dæma. Stefnt sé að því að opna mathöllina í lok október eða byrjun nóvember.

VERA mathöll hefur opnað dyrnar

Vera mathöll opnaði í Vatnsmýri um helgina en um er að ræða mathöll þar sem átta veitingastaðir verða með rekstur sinn. 

Stækka Glerártorg og bæta við mathöll

Áform eru uppi um stækkun Glerártorgs sem mun þá innihalda 500 fermetra mathöll. Stefnt er að endurskipulagningu verslunarmiðstöðvarinnar og fjölgun bílastæða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×