Bíó og sjónvarp

Vinur Jay Leno gæti hafa bjargað lífi hans um helgina

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jay Leno hlaut alvarleg brunasár á andliti.
Jay Leno hlaut alvarleg brunasár á andliti. Getty/Roy Rochlin

Bandaríski þáttastjórnandinn og grínistinn Jay Leno slasaðist alvarlega í bruna um helgina. Hann er með þriðja stigs brunasár á andliti en snör viðbrögð vinar hans sáu til þess að ekki fór verr. 

Bruninn átti sér stað um helgina í bílskúr Leno. Hann hlaut alvarleg brunasár á vinstri hlið andlitsins en eyra hans og auga sluppu. Leno segist ætla að taka næstu tvær vikur í að jafna sig.

Bílskúr hans er staðsettur í Burbank í Los Angeles en Leno á meira en 180 ökutæki. Hann hefur safnað þeim í mörg ár. Bandaríski fjölmiðillinn TMZ ræddi við Leno en hann segist hafa verið að vinna við að laga White Steamer-bíl sinn þegar eldsvoðinn hófst. 

Leno og White Steamer-bíllinn sem hann var að vinna viðJay Leno's Garage

Eldsneytisleiðsla bílsins var stífluð og var Leno að laga hana. Við viðgerðina sprautaðist eldsneyti á andlit hans og á nánast sama tíma varð neisti við leiðsluna. Við það kviknaði í Leno. 

Hann var heppinn að vinur hans Dave var með honum. Sá gat slökkt eldinn stuttu eftir að hann kviknaði og bjargaði þannig mögulega lífi Leno. Hann verður á spítala næstu fimm til tíu dagana. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.