Lífið

Ellefta barnið komið í heiminn og það tólfta á leiðinni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Það má segja að þáttastjórnandinn Nick Cannon sé orðinn hvað þekktastur fyrir barnalán sitt.
Það má segja að þáttastjórnandinn Nick Cannon sé orðinn hvað þekktastur fyrir barnalán sitt. Getty/Leon Bennett

Barnamaskínan Nick Cannon er orðinn ellefu barna faðir. Hann eignaðist dótturina Zeppelin Cannon á þeim flotta degi 11.11. með plötusnúðinum Abby De La Rosa. Zeppelin er þá fjórða barnið sem Cannon eignast á þessu ári en það fimmta er væntanlegt í desember.

Zeppelin er þriðja barnið sem Cannon eignast með De La Rosa. Saman eiga þau tvíburadrengina Zion og Zillion sem komu í heiminn í júní á síðasta ári. Þeir eru því aðeins eins og hálfs árs gamlir og má því ætla að það verði nóg að gera á þeim bænum nú á næstunni með þrjú lítil börn.

Á von á fimmta barninu á árinu

Það mætti færa rök fyrir því að Cannon ætti að eiga sitt eigið herbergið á fæðingardeildinni, því hann mun brátt dvelja þar í fimmta sinn á þessu ári.

Fyrirsætan Alyssa Scott er ófrísk af barni Cannons og er hún sett í desember á þessu ári. Cannon og Scott eignuðust drenginn Zen í júní á síðasta ári, aðeins níu dögum eftir að Cannon eignaðist tvíburana með De La Rosa. Tveimur mánuðum síðar greindist Zen með heilaæxli og lést hann aðeins fimm mánaða gamall.

Sjá: Sjöunda barn Nick Cannon lést á sunnudag

Instagram

Sjö börn á síðustu tveimur árum

Nick Cannon er þekktastur sem þáttastjórnandi og fyrir það að hafa verið giftur söngkonunni Mariah Carey í átta ár. Þessa dagana stýrir hann þáttunum Masked Singer sem sýndir eru á Stöð 2.

Það má þó segja að Cannon sé nú orðinn þekktari fyrir barnalán sitt. Hann hefur eignast ellefu börn með sex konum. Þar af hefur hann eignast sjö börn á síðustu tveimur árum.

Hefur húmor fyrir barnaláninu

Vinir Cannons hafa slegið á létta strengi þegar kemur að barnaláni hans. Leikarinn Ryan Reynolds gerði meðal annars myndband með Cannon á feðradaginn þar sem þeir blönduðu kokteil sem kallaðist „Herraklipping“ (e.vasectomy).

Eftir að Cannon tilkynnti að hann ætti von á tólfta barninu, tvítaði Reynolds að Cannon hefði líklega þurft stærri flösku af kokteilnum.

Þá virðist Cannon sjálfur hafa mikinn húmor fyrir þessari þörf sinni á að fjölga sér, því í gær deildi hann þessari mynd á Instagram síðu sinni.


Tengdar fréttir

Bíður eftir ellefta barninu og er sagður eiga von á því tólfta

Barnamaskínan og þáttastjórnandinn Nick Cannon er sagður eiga von á enn öðru barninu. Barnsmóðir hans Alyssa Scott greindi frá því á Instagram í gær að hún væri ófrísk. Þá herma heimildir ET fjölmiðilsins að Cannon sé faðirinn, þrátt fyrir að hann hafi ekki enn staðfest það.

Nick Cannon á von á sínu níunda og tíunda barni

Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon á nú von á sínu níunda og tíunda barni. Nýjasta tilkynningin er hans þriðja barn með fyrirsætunni Brittany Bell en fyrir eiga þau börnin Golden Sagon og Powerful Queen.

Telur ein­kvæni vera ó­heil­brigt

Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon opnaði sig um ástarlíf sitt í hlaðvarpi í gær. Þar lýsti hann því meðal annars yfir að hann tengdi einkvæni við sjálfselsku og eignarhald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.