Þrjár af fjórum bestu í heimi spila fyrir Þóri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2022 15:00 Henny Reistad er besta handboltakona heims að mati Stigs Nygård, blaðamanns á TV2. getty/Slavko Midzor Að mati norska blaðamannsins Stigs Nygård spila þrjár af fjórum bestu handboltakonum heims undir stjórn Þóris Hergeirssonar í norska landsliðinu.
Nygård hefur það fyrir vana að velja fimmtíu bestu handboltamenn heims, bæði karla og konur, þegar styttast fer í enda hvers árs. Annað árið í röð er hin norska Henny Reistad á toppi lista Nygårds. Hún er markahæsti leikmaður norska liðsins á EM sem nú stendur yfir. Reistad, sem er 23 ára, gekk í raðir Esbjerg í Danmörku frá Vipers í heimalandinu fyrir þetta tímabil. Í 2. sæti listans er hin rúmenska Cristina Neagu sem fer upp um tvö sæti frá síðasta ári. Hún hefur verið í hópi fremstu handboltakvenna heims um langt árabil. Norski landsliðsmarkvörðurinn Katrine Lunde er í 3. sæti listans og samherji hennar, Nora Mörk, í því fjórða. Líkt og Reistad fór hún frá Vipers til Esbjerg í sumar. Í 6. sæti listans er svo leikstjórnandi norska landsliðsins, Stine Oftedal, og að mati Nygårds eru því fjórar af sex bestu handboltakonum heims norskar. Lista Nygårds má sjá með því að smella hér. Noregur mætir Slóveníu í öðrum leik sínum í milliriðli EM klukkan 17:00 í dag. Með sigri tryggir norska liðið sér sæti í undanúrslitum mótsins.
EM kvenna í handbolta 2022 Mest lesið Albert sagður á óskalista Everton og Inter Fótbolti Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Körfubolti Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Fótbolti Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Lena Margrét til Svíþjóðar Handbolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagur í Njarðvík, Jókerinn og Íslendingalið Fortuna Sport Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Fótbolti Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sænsku stelpurnar voru 28-8 yfir í hálfleik Handboltastjarna hættir 31 árs: Með tilboð en langar að gera eitthvað annað „Gekk vel að þjappa hópnum saman“ Sjá meira