Borgin komin í „snúna stöðu“ og getur ekki reitt sig á viðsnúning í hagkerfinu
![Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun rétta Einari Þorsteinssyni keflið árið 2024. Ef fjárhagsáætlun rætist mun launahlutfall A-hluta hafa lækkað úr 89 prósentum í 82 prósent þegar kemur að stólaskiptum.](https://www.visir.is/i/F9EA36C246A2090947BFA3A4E26602584901513E8AD81E91B2EE726E4E6EB1B2_713x0.jpg)
Hlutfall launakostnaðar A-hluta Reykjavíkurborgar hefur farið stigvaxandi á undanförnum árum og verður 89 prósent í ár af samanlögðum útsvars- og Jöfnunarsjóðs tekjum. Hagfræðingur segir að launahlutfall Reykjavíkurborgar hafi hækkað hraðar en almennt á sveitarstjórnastiginu og ljóst sé að veltufé frá rekstri, sem hefur minnkað hratt síðustu ár, muni ekki duga fyrir afborgunum langtímalána og lífeyrisskuldbindinga í ár og fyrr en árið 2025.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/71D9BBB8BE2B38C7C53E2606ABEF4355E536434548C07DB0D0473237D4EDEAB9_308x200.jpg)
Þungt launaskrið í borginni og veltufé frá rekstri fer þverrandi
Launahlutfallið í A-hluta Reykjavíkurborgar er komið upp í 60 prósent eftir að launakostnaður fór töluvert fram úr fjárheimildum á síðasta ári. Þetta má lesa úr nýbirtum ársreikningi Reykjavíkurborgar.
![](https://www.visir.is/i/10E4918DBA17270ABFB492830DD306E52E3C196CBCB3D11B9CCC119D568C50FA_308x200.jpg)
Margfalt minni sveitarfélög skiluðu mun meiri fjármunum en borgin í fyrra
Einungis tvö af tíu stærstu sveitarfélögum landsins skiluðu minna veltufé frá rekstri í fyrra en Reykjavíkurborg þrátt fyrir að borgin sé langstærsta sveitarfélagið.