Skoðun

Treysta ekki ESB í varnarmálum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Við getum ekki treyst á Evrópusambandið þegar kemur að varnarmálum. Fyrir vikið var ákveðið að sækja um aðild að NATO. Þetta kom efnislega fram í máli Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands, fyrr í vikunni á ráðstefnu NATO-þingsins í Helsinki, höfuðborg landsins, samkvæmt frétt mbl.is.

Haavisto sagði þannig ekki hægt að treysta á grein 42.7 í Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins um aðstoð frá öðrum ríkjum þess ef ráðist væri á eitt þeirra. Ráðherrann sagði ákvæðið enda ekki stutt af neinum innviðum, hersveitum eða heræfingum. Veran í sambandinu tryggði því ekki varnir Finnlands.

Fulltrúi Svíþjóðar á þinginu tók undir þessi ummæli finnska utanríkisráðherrans inntur eftir því af Njáli Trausta Friðbertssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og formanni Íslandsdeildar NATO-þingsins, en sænsk stjórnvöld líkt og finnsk sóttu sem kunnugt er formlega um aðild að NATO fyrr á þessu ári.

Hverju ætti ESB að bæta við?

Hérlendir stuðningsmenn þess að Íslandi gangi í Evrópusambandið hafa ítrekað haldið því fram í kjölfar innrásar rússneska hersins í Úkraínu að innganga í sambandið væri nauðsynleg til þess að tryggja varnir landsins og að aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin væru ekki nóg til þess.

Minna hefur hins vegar farið fyrir haldbærum rökum fyrir því hverju nákvæmlega Evrópusambandið ætti að bæta við í þeim efnum. Ekki sízt í ljósi þess að eftir aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO verða 23 af 27 ríkjum sambandsins þar innanborðs. Eftir standa Austurríki, Írland, Kýpur og Malta.

Hafa má einnig í huga í þessu sambandi að þau aðildarríki NATO sem eru ekki innan Evrópusambandsins standa undir 80% af útgjöldum aðildarríkja bandalagsins til varnarmála. Þar vega Bandaríkin langþyngst með um 70% þeirra eða rúmlega þreföld samanlögð útgjöld allra hinna aðildarríkjanna.

Ófært um að tryggja eigið öryggi

Fullyrðingar um að nauðsynlegt sé fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið til þess að tryggja varnir landsins standast þannig enga skoðun. Fyrir utan það sem innganga í sambandið hefði í för með sér. Þá ekki sízt framsal valds yfir flestum málum þjóðarinnar og vægi við ákvarðanatöku út frá íbúafjölda.

Viðbrögð stuðningsmanna inngöngu í Evrópusambandið, þegar bent hefur verið á dugleysi þess í varnarmálum, hafa verið þau að segja inngönguna snúast um efnahagslegt öryggi. Á sama tíma liggur fyrir að sambandið hefur reynzt alls ófært um að tryggja eigið efnahagslegt öryggi gagnvart Rússlandi.

Fyrir liggur einfaldlega að Bandaríkin verða áfram hryggjarstykkið í vörnum vestrænna ríkja enda eina ríkið í þeim hópi sem hefur burði til þess að verja bæði sig sjálf og aðra. Varnarhagsmunir Íslands verða fyrir vikið áfram bezt tryggðir með aðildinni að NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×