Skoðun

Kvennafrí

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar

Í dag eru 47 ár frá kvennafrídeginum þegar konur lögðu niður störf og kröfðust launajafnréttis. Kvennafrídagurinn sýndi mátt kvennasamstöðunnar í verki. Kvennasamstaðan er magnað fyrirbæri sem hefur verið hreyfiafl mikilvægra samfélagsumbóta í þágu jafnréttis og mannréttinda. Engu að síður búa konur hér á landi enn við launamisrétti sem rekja má að mestu til kynskipts vinnumarkaðar og vanmats á virði kvennastarfa.

Hvernig gengur ?

Samkvæmt launarannsókn Hagstofunnar var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14,0% hjá ríkisstarfsmönnum og 7,4% meðal starfsfólks sveitarfélaga árið 2019. Það er óþolandi að nú hátt í 70 árum eftir lögfestingu launajafnréttis hér á landi sé staðan þessi.

Virði starfa

Beina þarf sjónum að virðismati starfa. Launajafnrétti næst ekki nema launasetning byggi á heildstæðu mati starfa þar sem litið er til þátta eins og ábyrgðar á fólki, tilfinningalegu álagi, vinnuumhverfi, og samkenndar til jafns við mannaforráð og ábyrgð á fjármálum. Þó að launajafnrétti á vettvangi sveitarfélaga hafi ekki verið náð skera sveitarfélög sig úr með næstum helmingi lægri launamun er aðrir markaðir.

Leið sveitarfélaga

Sérstaða sveitarfélaganna á sér án efa margvíslegar skýringar. Ein þeirra er vafalaust sú að frá aldamótum hafa sveitarfélögin beint sjónum að verðmætamati starfa og notast við starfsmatskerfi við mat á störfum. Í því felst að mat á virði starfa byggir á samræmdum viðmiðum sem leitast er við að feli ekki í sér kynjaskekkju Starfsmatskerfið nær aðeins til grunnlauna starfa og verk að vinna að vinna hvað varðar viðbótarlaunin. Um þessar myndir er aukin áhersla á virðismat starfa og er því full ástæða til að líta til reynslu sveitarfélaganna af notkun starfsmatskerfis í þeirri vegferð.

Launamisrétti þarf að uppræta því þessi félagslegi og efnahagslegi veruleiki kvenna hefur áhrif á lífsgæði og efnahagslega stöðu þeirra alla ævi. Við það verður ekki unað fyrr en fullt jafnrétti næst.

Til hamingju með daginn!

Höfundur er borgarfulltrúi, formaður sambands íslenskra sveitarfélaga, varaformaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×