Reykjavíkurborg fær rafmagn frá N1 Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. október 2022 15:15 Rafmagnsleysi hefur verið óvenju títt í miðborginni og Vesturbænum upp á síðkastið. vísir/vilhelm N1 rafmagn ehf. mun sjá Reykjavíkurborg fyrir rafmagni næstu tvö árin, frá og með áramótum. Rafmagnskaup borgarinnar færast frá dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur sem er í meirihlutaeigu borgarinnar.
Þetta er niðurstaða útboðs Reykjavíkurborgar sem borgin var skikkuð til að fara í eftir að Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði að Reykjavíkurborg skyldi bjóða út kaup á raforku. Hingað til hefur Reykjavíkurborg keypt rafmagn af Orku náttúrunnar, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í meirihlutaeigu borgarinnar. Um er að ræða alla almenna raforkunotkun borgarinnar auk götulýsingar. Boðin voru út innkaup á 46 gígavattstundum. Fjögur tilboð bárust, frá N1, Orkusölunni, Orku náttúrunnar og Straumlind. Yfir kostnaðaráætlun en þó tuttugu prósent lægra en núverandi verð N1 rafmagn átti lægsta tilboðið. Hljóðaði það upp á á 5,65 krónur á hverja kílóvattstund fyrir almenna notkun en 5,35 krónur fyrir götulýsingu. Það þýðir að N1 mun veita þjónustuna fyrir 257,5 milljónir króna á ári. Í tilkynningu á vef borgarinnar segir að tilboð N1 hafi verið nokkuð yfir kostnaðaráætlun en þó tuttugu prósentum undir núverandi orkuverði. Gildistími samningsins verður frá 1. janúar 2023 til 31. desember 2025. Heimilt er að segja upp samningnum með þriggja mánaða fyrirvara tólf mánuðum eftir að hann er kominn á og hægt er að framlengja hann tvisvar um eitt ár í senn.
Reykjavík Samkeppnismál Orkumál Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira