Útsvarstekjur Reykjanesbæjar aukast um fimmtung milli ára
![Aukin umsvif á Keflavíkurflugvelli skila sér beint í bókhaldið hjá Reykjanesbæ.](https://www.visir.is/i/F26AFE4A6C0DBF02B78A7A391188468EE0186659831DACE8CA17C432A0F45C1E_713x0.jpg)
Útsvarsgreiðslur til íslenskra sveitarfélaga jukust um 11,7 prósent milli ára á fyrstu níu mánuðum ársins, eða um samtals 22,6 milljarða króna, að því er kemur fram í gögnum Sambands íslenskra sveitarfélaga um greitt útsvar. Af stærstu sveitarfélögum landsins varð langmesta aukningin hjá Reykjanesbæ.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/34FFB459549A7E4DF2A0C2D9DFBF2BB7DD698D433CA538872DC0F5AD14F848C4_308x200.jpg)
Reykjavíkurborg segir fjölda málaflokka vanfjármagnaða af hálfu ríkisins
Fjármálasvið Reykjavíkurborgar segir að fjöldi málaflokka sveitarfélaga séu van- eða ófjármagnaðir í athugasemdum við fjárlagafrumvarp Alþings fyrir árið 2023. Um sé að ræða skyldur sem ríkið leggur á herðar sveitarfélaga en fjármagn fylgi ekki með til að standa straum af kostnaði.
![](https://www.visir.is/i/0A87024363E13C048E5E6BB875D42A40C4D62A2EB266CB5AF3F0BA610AD7CBAA_308x200.jpg)
Stefnir í óefni ef sveitarfélög koma ekki böndum á launagjöld
Það gæti stefnt í óefni ef sveitarfélög koma ekki böndum á hækkun launagjalda og fjölgun stöðugilda. Einnig þarf að huga betur að samsetningu starfsfólks sem sinnir grunnþjónustu svo að þjónustustig sé í samræmi við fjölda starfsmanna og þjónustuþörf. Þetta segir Haraldur L. Haraldsson, hjá HLH Ráðgjöf, sem hefur áratuga reynslu af ráðgjöf á stjórnskipulagi, fjármálum og rekstri sveitarfélaga.