Lífið

Stundaði kynlíf ömmu sinni til heiðurs

Elísabet Hanna skrifar
Kim Kardashian tilkynnti ömmu sinni tíðindin.
Kim Kardashian tilkynnti ömmu sinni tíðindin. Getty/Gotham

„Við stunduðum kynlíf fyrir framan arineldinn þér til heiðurs,“ sagði athafnakonan Kim Kardashian við ömmu sína MJ í nýjasta þættinum af  The Kardashians. Ömmu hennar brá heldur betur í brún þar til hún fékk staðfest að það hafi verið inni á hótelherbergi en ekki í anddyri hótelsins. 

Samtalið átti sér stað þar sem Kim sat ásamt móður sinni Kris Jenner, systur sinni Khloé og ömmu sinni MJ. Hún var að sega þeim frá nánum kynnum sínum og þáverandi kærasta hennar Pete Davidson. „Við Pete vorum að gista á The Beverly Hills hótelinu síðustu helgi. 

Við sátum fyrir framan arineldinn og töluðum saman í marga klukkutíma. Ég sagði: Amma mín sagði mér að maður sé virkilega að lifa lífinu þegar maður stundar kynlíf fyrir framan arininn. Þannig að við stunduðum kynlíf fyrir framan arineldinn, þér til heiðurs,“ sagði Kim. Hún bætti því svo við að hún gerði sér grein fyrir því að það væri furðulegt.

„Ekki í anddyrinu?“ Svaraði amma hennar þá áhyggjufull. Kim fullvissaði ömmu sínu um að það hafi ekki gerst í anddyri hótelsins. „Hversu furðulegt er það að hugsa um ömmu þína áður en þú stundar kynlíf?“ spurði Kim.

„Ég veit en ég var einu sinni ung,“ sagði amma hennar þá. 

Amma Kim var einu sinni ung.Getty/Marc Piasecki





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.