Lífið

Khloé Kardashian segist hafa fundið æxli á andliti sínu

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Khloé Kardashian deilir sögu sinni á Instagram en þar má sjá myndir af henni með plástra á andlitinu. Myndin er samsett.
Khloé Kardashian deilir sögu sinni á Instagram en þar má sjá myndir af henni með plástra á andlitinu. Myndin er samsett. Getty/NDZ/Star Max, Instagram/Khloé Kardashian

Khloé Kardashian greindi frá því fyrr í kvöld á Instagram síðu sinni að hún hafi þurft að láta fjarlægja æxli af andliti sínu. Hún hefur áður þurft að láta fjarlægja sortuæxli af baki sínu. 

Kardashian segist hafa séð sögur á sveimi og getgátur um það af hverju hún hafi verið með plástur á andliti sínu í nokkurn tíma. Hún segir fylgjendum sínum frá því að hún hafi farið til læknis eftir að bólga sem hún tók eftir á andliti sínu hvarf ekki eftir sjö mánaða bið.

Hér má sjá æxlið sem um ræðir, bólguna sem ekki hjaðnaði. Skjáskot/Khloé Kardashian/Instagram

Þeir læknar sem hafi skoðað andlit hennar hafi sagt nauðsynlegt fyrir hana  að gangast undir aðgerð vegna æxlisins strax en æxli sem þetta sé mjög sjaldgæft hjá ungu fólki. Hún bendir sérstaklega á að hún sé dugleg að nota sólarvörn en enginn sé ónæmur fyrir húðbreytingum sem þessum.

Hér er Khloé með plástur á andliti sínu eftir aðgerðina. Skjáskot/Khloé Kardashian/Instagram

Aðgerðina segir hún hafa gengið vel en læknir hennar hafi náð öllu meininu og allt virðist hafa gengið eins og í sögu, nú þurfi sárið bara að gróa.

Kardashian tekur fram að henni þyki mikilvægt að tala um málið vegna þess að hún láti athuga hluti sem þessa reglulega þar sem hún fékk sortuæxli 19 ára. Hún leggur áherslu á að fólk láti skoða sig reglulega og fylgist vel með.

Hún segist þakklát fyrir læknana sína og að æxlið hafi fundist jafn snemma og raun ber vitni.

Hún segist hafa þurft að láta fjarlægja sortuæxli aðeins 19 ára gömul.Skjáskot/Khloé Kardashian/Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.