Lífið

Fjöl­miðla­konan Kati­e Couric greindist með brjósta­krabba­mein

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Couric hefur verið dugleg að fræða fólk um krabbamein í gegnum árin og virðist hennar eigin greining ekki breyta neinu.
Couric hefur verið dugleg að fræða fólk um krabbamein í gegnum árin og virðist hennar eigin greining ekki breyta neinu. Getty/Santiago Felipe

Fjölmiðlakonan Katie Couric greindi frá því í gær að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein fyrr í sumar. Meinið var fjarlægt og hún lauk geislameðferð fyrr í vikunni.

Couric er 65 ára gömul og hefur unnið til allskyns verðlauna fyrir störf sín sem fréttakona. Hún fór í reglubundna brjóstaskoðun og ætlaði að mynda hana fyrir fréttaþáttinn „Good Morning America.“ Þessu greinir Couric frá á heimasíðu sinni.

Hún segir greininguna hafa komið sér í opna skjöldu en eiginmaður hennar lést úr ristilkrabbameini þegar hann var 41 árs.

Hún sýndi frá því í „Today Show“ á NBC  þegar hún fór í ristilspeglun árið 2000 til þess að vekja athygli á málefninu. Myndbandið úr þættinum má sjá hér að neðan. 

Í brjósti Couric fannst æxli á stærð við ólívu og var fjarlægt þann 14. júlí síðastliðinn. Eftir greiningu kom í ljós að hún myndi ekki þurfa að fara í lyfjameðferð, krabbameinið væri einungis á stigi 1A en geislameðferð væri næsta skref.

Couric segist hafa hlustað á Dolly, Parton, Taylor Swift og Bruce Springsteen ásamt öðrum á meðan meðferðinni stóð. Á þriðjudaginn í þessari viku lauk hún meðferðinni.

Hún kveðst heppin að hafa aðgang að eins góðri heilbrigðisþjónustu og raun ber vitni, hún taki því ekki sem sjálfsögðum hlut og hefði verið reið yfir því að það sama eigi ekki við um alla Bandaríkjamenn.

Hún hvetur fólk til þess að fara í reglubundna brjóstaskoðun og komast að því hvort brjóst þeirra séu þétt líkt og hennar þar sem erfiðara geti verið að greina krabbameinið í þeim tilfellum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.