Bíó og sjónvarp

Gervigreind tekur við af James Earl Jones

Bjarki Sigurðsson skrifar
James Earl Jones hefur talað fyrir Svarthöfða í 45 ár.
James Earl Jones hefur talað fyrir Svarthöfða í 45 ár. Getty/Jim Spellman

Maðurinn sem hefur ljáð Stjörnustríðsillmenninu Svarthöfða rödd sína í tugi ára mun ekki koma til með að tala inn á fleira efni sem inniheldur persónuna. Þess í stað mun gervigreind sjá til þess að Svarthöfði muni aldrei þurfa nýja rödd.

James Earl Jones hefur verið rödd Svarthöfða allt frá árinu 1977 þegar fyrsta Stjörnustríðsmyndin, Ný von, kom út. Nú hefur hann aftur á móti skrifað undir samning við útgefendur alls Stjörnustríðsefnis, Disney og Lucasfilm, um að gervigreind taki við.

Gervigreindin var sérstaklega hönnuð af úkraínsku fyrirtæki fyrir Stjörnustríð og Svarthöfða en notast var við gamlar upptökur af Jones til að setja hana saman. Með gervigreindinni verður hægt að láta eins og Jones sjálfur sé að segja hvaða setningu sem er.

Jones er orðinn 91 árs gamall og ræddi nýlega við framleiðendur Stjörnustríðs um að hann vildi fara að fjarlægja sig frá hlutverkinu. Auðvitað var ekki hægt að gefa Svarthöfða nýja rödd og því var gervigreindinni komið á fótinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.