Innlent

Ráðuneytið blæs frekari umræðu um hjólhýsin út af borðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svæðið er orðið frekar hrörlegt.
Svæðið er orðið frekar hrörlegt. Vísir/Vilhelm

Innviðaráðuneytið telur ekki tilefni til að fjalla aftur formlega um ákvörðun Bláskógabyggðar að krefja eigendur hjólhýsa og tengdra mannvirkja um að fjarlæga þau af hjólhýsabyggð við Laugarvatn. Þetta kemur fram í bréfi ráðuneytisins eftir kvörtun sem barst í lok ágúst.

Bláskógabyggð segir ákvörðun sína, sem er um tveggja ára gömul, byggja á því að öryggismál á svæðinu séu ekki í lagi. Einkum það sem snúi að brunavörnum. Ekki hafi verið hægt að bæta úr brunavörnum nema rýma svæðið, deiliskipuleggja upp á nýtt og koma fyrir innviðum á borð við vatnslögnum og annað.

Hópur hjólhýsaeigenda, sem berst fyrir tilverurétti sínum fram í rauðan dauðann, fékk lögmann til þess að skoða málið og senda inn stjórnsýslukæru til ráðuneytisins. 

Ráðuneytið segir í svari sínu, sem birt er í fundargerð sveitarstjórnar Bláskógabyggðar frá 21. september, að þegar hafi verið úrskurðað í málinu, í desember í fyrra. Stjórnarskrárbundinn réttur sveitarfélaga til að ráða málefnum sínum samkvæmt stjórnarskránni veiti Bláskógarbyggð svigrúm til að koma starfsemi hjólhýsasvæðisins í lögmætt horf.

27. Málefni hjólhýsasvæðis á Laugarvatni – 2004032

Afrit af bréfi Innviðaráðuneytisins, til tilkynnanda, dags. 12.09.2022,um að ráðuneytið telji ekki tilefni til að fjalla aftur formlega um stjórnsýslu sveitarfélagsins varðandi málefni hjólhýsasvæðisins á Laugarvatni og að málinu sé lokið af hálfu ráðuneytisins.

Bréfið var lagt fram. Það kemur fram sú niðurstaða innviðaráðuneytisins að ekki sé tilefni til að taka til skoðunar stjórnsýslu Bláskógabyggðar vegna þeirrar ákvörðunar að framlengja ekki samninga um hjólhýsasvæðið á Laugarvatni. Tilkynning ráðuneytisins kemur í kjölfar erindis einstaklings, dags. 30. ágúst s.l., varðandi meinta ólögmæta stjórnsýslu Bláskógabyggðar í málinu. Ráðuneytið vísar til þess að það hafi þegar gefið út álit, dags. 29. desember 2021, þess efnis að stjórnarskrárbundinn réttur sveitarfélaga til að ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða, sbr. 78. gr. stjórnarskrárinnar, veiti sveitarfélaginu svigrúm til að koma starfsemi hjólhýsasvæðisins í lögmætt horf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×