Innra fjárfestingafélag ríkisins fer af stað með 1,5 milljarða króna heimild
![Áætlað er að Fjárföng fjárfesti fyrir um 300 til 500 milljónir króna á ári fyrstu þrjú árin.](https://www.visir.is/i/88D5841EF10BEA035AD140189C0C689FACFBC5CA8C54D2EDB7A0BD8374E41DF1_713x0.jpg)
Ríkissjóður hefur sett á stofn einkahlutafélagið Fjárföng sem er eins konar innra fjárfestingafélag ríkisins. Hlutverk félagsins, sem hefur umtalsverða lántökuheimild hjá ríkissjóði, er að fjármagna verkefni ríkisstofnana sem stuðla að umbótum og hagræðingu í ríkisrekstri til lengri tíma.