Bíó og sjónvarp

Áhugi Íslendinga á evrópskum þáttaröðum hefur stóraukist

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þóra Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2. Ítalska mafíuþáttaröðin Gomorra er á meðal þeirra sem bætast við í gegnum Kritic.
Þóra Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2. Ítalska mafíuþáttaröðin Gomorra er á meðal þeirra sem bætast við í gegnum Kritic.

Efnisveitan Stöð 2+ hefur samið við þjónustuna Kritic sem eykur úrval þáttaraða á hinum ýmsu tungumálum eins og til dæmis frönsku, dönsku, norsku, ítölsku, spænsku, pólsku og þýsku. Áhugi Íslendinga á evrópsku efni hefur stóraukist síðustu misseri.

Þóra Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2, segir að þetta sé algjör nýjung í vöruúrvali Stöðvar 2+ en hingað til hefur nær eingöngu verið boðið upp á efni á íslensku og ensku.

„Við finnum það á okkar áskrifendum að áhuginn á hágæða sjónvarpsefni hefur aldrei verið meiri. Kritic útvegar okkur hágæða evrópskar þáttaraðir á ýmsum tungumálum. Nú þegar eru komnar inn 26 þáttaraðir frá þeim og munu fleiri bætast við í vikunni. Í hverjum mánuði munum við svo bæta við úrvalið,“ segir Þóra.

Valið af sérfræðingum

„Það hefur sýnt sig með tilkomu stóru erlendu efnisveitnanna að ef efnið er gott þá skiptir tungumálið litlu máli. Dæmi um það má nefna kóresku seríuna Squid Game,“ segir hún en kóreski sjónvarpsþátturinn Squid Game sló öll áhorfsmet og er sá vinsælasti á streymisveitunni Netflix frá upphafi.  

„Við þekkjum vel til þeirra aðila sem standa á bak við Kritic þjónustuna og treystum þeirra sérþekkingu þegar kemur að vali á besta sjónvarpsefninu sem völ er á hverju sinni. Við erum gríðarlega spennt fyrir því úrvali sem þjónustan samanstendur af nú þegar og vitum að von er á ennþá meira efni frá Kritic sem áskrifendur Stöðvar 2+ munu njóta góðs af.“

Klippa: Stöð 2 - Kritic

Vísir og Stöð 2 eru í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Myndaveisla: Markaðsfólk fjölmennti á haustkynningu

Auglýsinga- og markaðsfólk fjölmennti á haustkynningu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis sem fór fram í Gamla bíó í síðustu viku. Fyrirlesarinn Jenni Romaniuk kom fram auk þess að Herra Hnetusmjör og Hugo fengu salinn til að dilla sér með nokkrum frábærum lögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.