Lífið

Ungar stúlkur bregðast við Litlu haf­­meyjunni: „Hún er dökk eins og ég!“

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Leikkonan Halle Bailey fer með hlutverk hafmeyjunnar Aríel við mikla lukku dökkra stúlkna.
Leikkonan Halle Bailey fer með hlutverk hafmeyjunnar Aríel við mikla lukku dökkra stúlkna. Getty/Corey Nickols

Myndbönd hafa gengið um netheima þar sem sjá má viðbrögð ungra stúlkna við fyrstu stiklu úr væntanlegri kvikmynd um Litlu hafmeyjuna. Hjartnæm viðbrögð stúlknanna við húðlit hafmeyjunnar hafa vakið athygli en í kvikmyndinni er Aríel dökk á hörund.

Leikin útgáfa af kvikmyndinni um Litlu hafmeyjuna kemur út á næsta ári. Disney birti örstiklu úr myndinni fyrir nokkrum dögum. Í stiklunni fengu áhorfendur að berja hina nýju Aríel augum í fyrsta sinn. Vakti það athygli að í þessari kvikmynd er Aríel dökk á hörund.

Nokkrir foreldrar dökkra stúlkna tóku viðbrögð dætra sinna við stiklunni upp á myndband og deildu á samfélagsmiðlinum TikTok. Óhætt er að segja að hjartnæm viðbrögð þeirra hafi hreyft við netverjum.

@zaneholmestiktok

Black kids react to little mermaid trailer!

original sound - Zane

Vill sýna stúlkunum að þær geti líka verið prinsessur

Hin tuttugu og tveggja ára gamla leikkona Halle Bailey fer með hlutverk hafmeyjunnar Aríel. Var það gert opinbert fyrir nokkrum árum síðan að Bailey skyldi fara með hlutverkið. Vakti það talsvert umtal þar sem Aríel hefur hingað til verið hvít líkt og flestar aðrar Disney prinsessur.

„Ég vil að litla stúlkan innra með mér og allar aðrar stúlkur eins og ég viti að þær séu einstakar og að þær séu fullfærar um að vera prinsessur. Það er ekkert sem segir að þær geti ekki verið prinsessur. Þessi viðurkenning var eitthvað sem ég þurfti,“

sagði Bailey í viðtali við tímaritið Variety.

Myndböndin af ungu stúlkunum hafa ekki farið framhjá leikkonunni sem brást við á Instagram síðu sinni í gær.

„Fólk hefur verið að senda mér þessi viðbrögð núna um helgina og ég er svo sannarlega orðlaus. Að sjá viðbrögð þessara ungu barna gerir mig svo meyra. Þetta er mér hjartans mál. Takk fyrir allan stuðninginn.“

Melissa McCarthy verður illmennið Úrsúla

Kvikmyndin um litlu hafmeyjuna er væntanleg árið 2023. Leikstjóri myndarinnar er Rob Marshall. Hann hefur komið að gerð mynda á borð við Pirates of the Caribbean, Chicago og Annie.

Leikkonan Melissa McCarthney mun fara með hlutverk illmennisins Úrsúlu. Þá fer leikarinn Jonah Hauer-King með hlutverk draumaprinsins Eriks. Hér að neðan má sjá örstiklu úr myndinni en ætla má að stikla í fullri lengd sé væntanleg á næstu misserum.


Tengdar fréttir

Stiklur fyrir Múfasa , Litlu hafmeyjuna og Hókus Pókus 2 frumsýndar

Um helgina hefur Disney verið með kynningu á öllu því efni sem er væntanlegt frá framleiðandanum á næstu misserum. Leikin útgáfa af Litlu hafmeyjunni, kvikmynd um Múfasa úr Konungi ljónanna og framhald af nornunum í Hókus Pókus er meðal þess sem er væntanlegt.

Fer að ráðum Beyoncé fyrir Litlu hafmeyjuna

Halle Bailey, söng- og leikkona, segist fara eftir ráðum Beyoncé þegar kemur að undirbúningi fyrir endurgerð Litlu Hafmeyjunnar, en Halle mun fara með hlutverk Aríel í leiknu myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.