Smitten fær fjármagn upp á 1,4 milljarða Vésteinn Örn Pétursson skrifar 15. september 2022 11:00 Þeir Davíð Örn og Ásgeir Vísir eru stofnendur Smitten. Smitten Íslenska stefnumótaforritið Smitten hefur tryggt sér rúmlega 1.400 milljónir króna í fjárfestingu til að halda áfram þróun forritsins. Smitten er vinsælasta stefnumótaforritið á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en þar segir að um sé að ræða 10 milljóna dollara fjárfestingu, eða um 1.400 milljónir króna. Fjárfestingin kemur frá Makers Fund, Possible Ventures, Wonder Invest og núverandi hluthöfum í Smitten, sem eru ByFounders, ProFounders, Tennin og Heini Zachariassen, stofnandi Vivino og stjórnarmaður í Smitten. Í tilkynningunni er haft eftir Davíð Erni Símonarsyni, öðrum stofnanda Smitten, að hann og Ásgeir Vísir, meðstofnandi hans, hafi mikinn áhuga á samskiptum og hegðunarmynstri fólks. „Eftir áratuga reynslu af gerð samskipta og samfélagsmiðla appa féllum við algjörlega fyrir hinum stafræna stefnumótaheimi og hleyptum Smitten af stokkunum. Með persónulegum leikjum og gagnvirkum prófílum gerum við notendum auðveldara fyrir að tengjast og eiga samtal. Þegar við sáum notendur kolfalla fyrir Smitten vissum við að við gætum orðið leiðandi á stefnumótamarkaði fyrir Z-kynslóðina,“ er haft eftir Davíð í tilkynningunni. Með Z-kynslóðinni vísar Davíð til fólks sem fætt er frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar til miðs fyrsta áratugar þessarar aldar. Hér má sjá hluta þess 16 manna hóps sem starfar hjá Smitten.Smitten Blanda saman leikjum, skemmtun og daðri Smitten var stofnað af þeim Davíð og Ásgeiri og forritið gefið út fyrir um tveimur árum síðan. Það gerðu stofnendurnir ásamt tæknistjóranum Magnúsi Ólafssyni, en í dag starfa 16 manns hjá Smitten. „Smitten blandar saman leikjum, skemmtun og daðri til að koma samræðum af stað og tengja notendur saman án fyrirhafnar. Skemmtileg og skapandi nálgun Smitten hefur snert við Z kynslóðinni en tugþúsundir virkir notendur appsins hafa swæpað yfir 200 milljón sinnum. Flestar samræður, hjá einstaklingum sem matcha saman í öðrum stefnumótaforritum, byrja vandræðalega og samræðurnar fjara fljótt út en Smitten gerir notendum kleift að hefja samræður á auðveldan hátt með leikjum, gagnvirkum prófílum og ísbrjótum. Hver sem er getur byrjað áhugaverðar og skemmtilegar samræður burtséð frá samskiptafærni en u.þ.b. 60% af mötchum hjá Smitten leiða til samræðna saman borið við 10% hjá stærsta samkeppnisaðilanum, Tinder,“ segir í tilkynningunni. „Að draga saman það besta úr samfélagsmiðlum og leikjum hefur vakið mikinn áhuga hjá okkur, en Smitten teyminu hefur tekist ótrúlega vel til við að skapa upplifun sem virkar fyrir ungt fólk”, er haft eftir Alla Óttarssyni, sem leiðir fjárfestinguna í Smitten fyrir hönd Makers Fund. „Eftir að hafa byggt upp sterk tengsl við stofnendur Smitten, Davíð Örn og Ásgeir Vísi, höfum við fengið þann heiður að fylgjast með árangri Smitten frá fremstu víglínu. Við deilum sameiginlegri sýn á það hvernig næsta kynslóð mun tjá sig og kynnast og erum gríðarspennt að vera hluti af vegferð Smitten.”
Stafræn þróun Nýsköpun Tækni Tengdar fréttir Telja sig geta unnið Tinder með skemmtilegra stefnumótaforriti Smitten, nýtt stefnumóta-app sem gefið er út af íslensku hugvitsfólki, leit dagsins ljós í gær. Smitten er ætlað að fara í beina samkeppni við Tinder, en bæði forritin flokkast til frjálslegra og afslappaðra stefnumótaforrita. 28. september 2020 08:26 Hvernig íslenska appið Smitten rústaði Tinder á árinu Íslendingar sendu 2,2 milljónir skilaboða í gegnum Smitten á árinu. 27. desember 2021 11:41 Mest lesið Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Viðskipti innlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Evrópusambandið frestar tollahækkunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Sjá meira
Telja sig geta unnið Tinder með skemmtilegra stefnumótaforriti Smitten, nýtt stefnumóta-app sem gefið er út af íslensku hugvitsfólki, leit dagsins ljós í gær. Smitten er ætlað að fara í beina samkeppni við Tinder, en bæði forritin flokkast til frjálslegra og afslappaðra stefnumótaforrita. 28. september 2020 08:26
Hvernig íslenska appið Smitten rústaði Tinder á árinu Íslendingar sendu 2,2 milljónir skilaboða í gegnum Smitten á árinu. 27. desember 2021 11:41