Leikjavísir

Assassin's Creed fer loks til Japans

Samúel Karl Ólason skrifar
Stiklan sýnir ninju með sverð og falið hnífsblað.
Stiklan sýnir ninju með sverð og falið hnífsblað.

Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins Ubisoft opinberuðu um helgina að ninjur munu loksins sjást í söguheimi Assassin‘s Creed leikjanna. Starfsmenn fyrirtækisins í Kanada vinna nú að leik sem á að gerast í Japan en spilarar hafa um árabil kallað eftir slíkum leik.

Leikurinn ber starfstitilinn Red en Ubisoft birti um helgina stutta stiklu fyrir leikinn.

Sú stikla sýnir þó ekki mikið annað en að leikurinn á að gerast í Japan og aðalpersóna hans verður að öllum líkindum ninja.

Ubisoft sýndi einnig fyrstu stiklu Assassin's Creed Mirage. Sá leikur gerist í Írak og fjallar um yngri ár Basim, sem spilarar leikjanna kannast ef til vill við úr Assassin's Creed Valhalla.

Einnig sýndu forsvarsmenn fyrirtækisins nýtt myndband úr sjóræningjaleiknum Skull and Bones. Sá leikur hefur verið lengi í framleiðslu og hefur hún vægast sagt ekki gengið vandræðalaust fyrir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.