Leikjavísir

Úr Red Dead í GTA 6

Samúel Karl Ólason skrifar
Arthur Morgan og Trevor Philips, úr RDR 2 og GTA 5.
Arthur Morgan og Trevor Philips, úr RDR 2 og GTA 5.

Starfsmenn leikjafyrirtækisins Rockstar kvöddu nýverið leikinn Red Dead Redemption. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ákveðið að hætta að þjónusta fjölspilunarhluta leiksins etir nýjustu uppfærslu hans og munu starfsmenn Rockstar þess í stað einbeita sér að framleiðslu sjötta Grand Theft Auto leiksins.

Rockstar hefur lengi verið gagnrýnt vegna Red Dead Online og þá sérstaklega fyrir fáar og umfangslitlar uppfærslur á leiknum. Svindlarar og gallar hafa leikið spilara grátt.

Í yfirliti nýjustu uppfærslurnar eru skilaboð frá starfsmönnum þar sem þeir þakka þeim sem spiluðu leikinn en sambærileg skilaboð fylgdu nýlegri uppfærslu á GTA 5, samkvæmt frétt PCGamesN.

Sjá einnig: Lík­lega besti leikur þessarar kyn­slóðar

Miðillinn segir líklegt að einhvers konar tilkynning um GTA 6 líti dagsins ljós á næstunni.

Það var ekki fyrr en í febrúar á þessu ári sem forsvarsmenn Rockstar staðfestu að framleiðsla GTA 6 væri hafin. GTA 5 kom fyrst út árið 2013 en hefur ítrekað verið gefinn út aftur síðan þá. Sá leikur hefur skilað Rockstar gífurlegum tekjum en hann varð fyrir þó nokkrum árum arðbærata skemmtanaafurð sögunnar.

Sjá einnig: Enn ein útgáfan og sú besta, aftur

Fyrr í sumar bárust þó fregnir af GTA 6 og þar á meðal að talið væri að hann yrði gefinn út á milli apríl 2023 og mars 2024. Þá var sagt frá því að kona yrði í einu af aðalhlutverkum leiksins og að hann gerðist í Vice City, sem er nokkurs konar útgáfa af Miami í Flórída.

Áður hefur því verið haldið fram að leikurinn muni ekki verða gefinn út fyrr en árið 2025.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.