Innlent

Skjálfti rúmlega fjórir að stærð austur af Grímsey

Bjarki Sigurðsson skrifar
Stjörnurnar merkja skjálfta yfir þrír að stærð.
Stjörnurnar merkja skjálfta yfir þrír að stærð. Veðurstofa Íslands

Klukkan tuttugu mínútur yfir eitt í dag varð skjálfti 4,1 að stærð sextán kílómetra austur af Grímsey. Tilkynningar hafa borist frá fólki á Akureyri og Siglufirði sem fann fyrir skjálftanum.

Nokkrir eftirskjálftar yfir þrír að stærð hafa fylgt í kjölfar stóra skjálftans en allir eru þeir hluti af hrinu sem hófst í gærmorgun.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að rúmlega 2.500 skjálftar hafi mælst í kringum Grímsey síðan hrinan hófst, sá stærsti í gærmorgun. Sá mældist 4,9 að stærð.

Engin merki eru um gosóróa á svæðinu en hrinur á þessum slóðum eru algengar þar sem flekaskil liggja á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×