Lífið

Svið­settur fundur ríkis­stjórnarinnar gæti orðið hin full­komna klám­mynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dr. Gunni fór á kostum í þættinum í gærkvöldi.
Dr. Gunni fór á kostum í þættinum í gærkvöldi.

Ný þáttaröð af Allskonar kynlíf fór í loftið í gærkvöldi. Fyrsti þáttur fjallar um kynörvandi miðla og mun stórstjörnunum Ólafi Darra, Þórunni Antoníu, Króla, Hugleiki Dagssyni og Dr. Gunna meðal annars bregða fyrir í þættinum.

 Að auki ferðuðust þau Ahd og Sigga Dögg til Barcelona við gerð þáttanna, meðal annars til að taka viðtal hina margverðlaunu feminísku klámmyndaleikstýru Erikuh Lust. Ennig var rætt við Tobbu Marínós í þættinum. 

„Ég horfi ekki á klám og það er út af því að ég bara ekki fundið neitt klám sem ég tengi almennilega við,“ segir Króli í þættinum í gærkvöldi.

Tobba Marínós fékk spurninguna hvernig hin fullkomna klámmynd væri.

„Er orðið klám fallegt? Það hafa allir séð myndir sem unglingar þar sem maður hugsar bara, vilja allir á staðnum þetta? Efni sem maður hugsar, þetta getur ekki verið eðlilegt. Ég myndi því vilja sjá efni sem væri mjög huggulegt og rómantískt, kannski ekki endilega rómantískt heldur fallegt og jákvætt. Og kannski smá fyndið líka, mér finnst það sexý og sjarmerandi. Sumar af þessum stellingum eru bara að biðja um að þetta fari illa. Það hafa allir lent í óþægilegum aðstæðum í kynlífi,“ segir Tobba.

„Við gætum tekið íslensku ríkisstjórnina og verið með tvífara þar. Byrjað á svona ríkisráðsfundi, jafnvel á Bessastöðum og þangað kæmi inn tvífari Guðna og hann myndi byrja að ávarpa hópinn,“ segir Dr. Gunni og sprakk úr hlátri.

„Ég gæti nú alveg sætt mig við samgönguráðuneytið en þú verður að gera eitt fyrir mig.“

Svona lýsir Gunni einni senu í hinni fullkomnu klámmynd.

Hér að neðan má sjá atriði úr þætti gærkvöldsins.

Klippa: Sviðsettur fundur ríkisstjórnarinnar gæti orðið hin fullkomna klámmynd





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.