Lífið samstarf

Ný heimasíða Lín Design komin í loftið

Lín Design
Lín Design hannar vörur í öll rými heimilisins auk fatnaðar fyrir alla fjölskylduna úr vistvænum efnum. Á nýju heimasíðunni er að finna allt vöruúrval Lín Design.
Lín Design hannar vörur í öll rými heimilisins auk fatnaðar fyrir alla fjölskylduna úr vistvænum efnum. Á nýju heimasíðunni er að finna allt vöruúrval Lín Design.

Ný og endurbætt vefverslun Lín Design er komin í loftið. 25% afsláttur er af öllum vörum í tilefni þess. Lín Design býður fallega heimilisvöru og fatnað úr umhverfisvænum og náttúrulegum efnum.

„Fyrsta vefverslunin okkar fór í loftið 2010 og því tími kominn á endurbætur,“ segir Ágústa Gísladóttir eigandi Lín Design. Sífellt fleiri kjósa að kaupa í þægindum heima í stofu eða á þeim tímum sem fólki hentar og Lín Design kemur til móts við viðskiptavini með bættu notendaviðmóti.

„Með bættri upplifun höfum við aukið þjónustustigið. Við einfölduðum meðal annars framsetninguna á vörunni og kaupferlið sjálft. Einnig eru kaupendur nú upplýstir um stöðu pöntunarinnar á öllum stigum og geta valið úr fleiri afhendingarmöguleikum,“ útskýrir Ágústa en hægt er að fá vöruna ýmist með Póstinum senda heim að dyrum, á pósthús eða í póstbox eða nýta sér Dropp.

Vistvæn íslensk hönnun

Lín Design hannar vörur í öll rými heimilisins auk fatnaðar fyrir alla fjölskylduna úr vistvænum efnum. Framleiðslan er einnig með umhverfisvænni vottun. Á nýju heimasíðunni er að finna allt vöruúrval Lín Design.

„Hér er hægt að klára innkaupin hjá okkur á einu bretti, til dæmis allar jólagjafirnar. Það sparar mikinn tíma og hægt er að senda gjafirnar beint á viðtakandann, í vistvænum, fjölnota gjafaumbúðum og með korti. Hjá okkur er einnig hægt að búa til sérstakan Óskalista og senda á vini og ættingja í tölvupósti en Óskalistinn er mjög vinsæll hjá verðandi brúðhjónum og fyrir fermingar. Það er sérstaklega þægilegt fyrir fólk sem býr í öðru sveitarfélagi eða jafnvel erlendis að fá óskalistann í tölvupósti og láta svo senda gjöfina beint á viðtakandann,“ útskýrir Ágústa.

Afsláttur út 5. september

„25% afsláttur verður út 5. september. Ég vil líka minna fólk á að skrá sig á póstlistann til að missa ekki af neinu, þar fær fólk að vita af öllum tilboðum og þá afslætti sem eru í gangi,“ segir Ágústa að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.