Lífið samstarf

Sauma sér fatnað með hjálp TikTok

Vogue fyrir heimilið
Skærir litir, glimmer og hologramefni eru sérstaklega vinsæl hjá ungu fólki í dag. Vefnaðarvörudeild Vogue fyrir heimilið er stútfull af spennandi efnum.
Skærir litir, glimmer og hologramefni eru sérstaklega vinsæl hjá ungu fólki í dag. Vefnaðarvörudeild Vogue fyrir heimilið er stútfull af spennandi efnum. getty

Ungt fólk saumar sér sjálft fatnað í auknum mæli og er óhrætt við að skera sig úr fjöldanum. Skærlit efni, glimmer og hologramefni rjúka út hjá Vogue fyrir heimlið.

„Við sjáum aukningu þar á. Ungt fólk er mikið að nota miðla eins og TikTok og Youtube til að prófa sig áfram. Við tökum líka eftir því að margir sækjast eftir að vera öðruvísi en allir hinir og eru óhræddir við að gera bara og prófa sig áfram,“ segja þær Freyja Sjöfn og Kristín Þöll Þórsdóttir sem stýra vefnaðarvörudeildum Vogue fyrir heimilið, í Reykjavík og á Akureyri.

Hjá þeim fæst allt sem þarf til þess að búa til draumaflíkina en hillurnar svigna undan spennandi og litríkum efnum og aukahlutum fyrir saumaskapinn.

„Við vorum meðal annars að taka inn nokkrar nýjar tegundir af tvinna og eru þar á meðal endurunninn tvinni og tvinni sem ætlaður er í að sauma tengjuefni og gefur vel eftir með efninu. Hologram og glimmer efni eru þau efni sem eru vinsælust núna og svo eru sporty efni líka mjög vinsæl; tricot, spandex, mesh og jogging.“

En hvað er fólk helst að sauma og er hagstæðara að sauma sér flík en kaupa?

„One sleeve toppar og kjólar eru mjög vinsæl, líka sett – buxur og bolur í stíl, útvíðar buxur og allt rykkt kjólar, bolir og buxur. 

Þeir litir sem við tökum eftir að eru vinsælir eru: fjólublár, lilla, turquise, orange og svo almennt skærir litir líka. 

En hvort það sé hagstæðara að sauma sjálf fer algerlega eftir hvort þú ert að horfa á dýrar hönnunarflíkur eða high street fatnað. High street kostar yfirleitt minna en er ekki eins endingagóður. Einnig er hann auðvitað fjöldaframleiddur sem hentar ekki alltaf þeim sem vilja skera sig úr.“

Hjá Vogue fyrir heimilið fæst einnig úrval af fallegum efnum í sængurver, gluggatjöld og dúka. Þær Freyja og Kristín segja vinsælt að sauma vöggusett í gjafir og þá sé alltaf vinsælt að sauma barnafatnað.

Nánar má kynna sér úrvalið á Vogue.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.