Bíó og sjónvarp

Stikla fyrir nýja „Knives Out“ ráðgátu: Benoit Blanc er mættur aftur

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Daniel Craig á frumsýningu fyrstu Knives out myndarinnar árið 2019.
Daniel Craig á frumsýningu fyrstu Knives out myndarinnar árið 2019. Getty/Axelle/Bauer-Griffin

Ný stikla hefur litið dagsins ljós vegna nýju „Knives Out“ kvikmyndarinnar. Myndin er í leikstjórn Rian Johnson. 

Aðdáendur kvikmyndarinnar „Knives Out“ geta tekið gleði sína á ný því framhaldsmyndin „Glass onion: A Knives Out Mystery“ mun birtast á Netflix 23. desember næstkomandi.

Í fyrri „Knives Out“ kvikmyndinni gerir einkaspæjarinn Benoit Blanc tilraun til þess að varpa ljósi á dularfullan dauðdaga rithöfundarins Harlan Thrombey. Þegar Blanc mætir á svæðið er sérkennileg og marglaga fjölskylda Thrombey í sárum en Blanc grunar þau um.

Nýja myndin gerist á grískri eyju en milljarðamæringurinn Miles Bron býður sínum nánustu í frí á einkaeyju sinni. Eins og svo oft áður er ekki allt sem sýnist og andlát setur strik í reikninginn. 

Daniel Craig fór með hlutverk Benoit Blanc í myndinni árið 2019 og mun nú endurtaka leikinn. Meðal leikara í „Glass onion: A Knives Out Mystery“ eru Ethan Hawke, Kathryn Hahn, Edward Norton, Kate Hudson og Dave Bautista ásamt fleirum.

Hér að neðan má sjá stiklu nýju myndarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.