Erlent

Þurrkar af­hjúpuðu 113 milljón ára gömul risa­eðlu­spor

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hér má sjá nokkur sporanna sem er að finna á botni Paluxy-ár í þjóðgarði Risaeðludals í Texas.
Hér má sjá nokkur sporanna sem er að finna á botni Paluxy-ár í þjóðgarði Risaeðludals í Texas. Dinosaur Valley State Park

Risaeðluspor sem eru talin vera um 113 milljón ára gömul komu í ljós á árbotni í Risaeðludal í Texas vegna gríðarlega þurrka sem hafa herjað á ríkið undanfarnar vikur. 

Undanfarnar tvær vikur hafa meira en 60 prósent af landi Texas-ríkis þurft að þola þurrka af öflugustu gerð, að sögn þurrkavaktar bandarískra veðurstofa.

Fornleifafræðingar skoða sporin á árbotni Paluxy-ár.Dinosaur Valley State Park

Líkt og víðar um heim hafa þurrkarnir í Texas haft mikil áhrif á vatnsborð áa og stöðuvatna. Í þjóðgarði Risaeðludals þornaði Paluxy-á nær algjörlega upp og á botni hennar komu þá í ljós risaeðluspor sem eru talin vera 113 milljón ára gömul.

Að sögn Stephanie Salinas Garcia, talsmanns þjóðgarðsins, tilheyra flest sporanna risaeðlu af gerðinni Acrocanthosaurus, tvífætt rándýr sem var um fjórir og hálfur metri að hæð og næstum sjö tonn að þyngd.

Salinas Garcia segir ekki enn ljóst hversu mörg risaeðluspor hafi fundist né hversu lengi þau muni vera sjáanleg. Líklega munu þau hverfa aftur undir vatn þegar fer að rigna á ný. 

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem samtök risaeðluvina tóku af sporunum á vettvangi.


Tengdar fréttir

Herskip, Búddastyttur og ýmsar fornminjar komið í ljós vegna þurrka

Hitabylgjur og þurrkar um Evrópu og í Kína hafa leitt til þess að vatnsborð í ám og stöðuvötnum hefur lækkað gríðarlega. Við það hafa ýmsar gersemar, sem áður voru á bólakafi, komið í ljós. Þar á meðal forsögulegir spænskir bautasteinar, kínverskar búddastyttur og fornminjar úr seinni heimsstyrjöldinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×